Greinar um þetta efni

Þjónustukjarnar Háskólatorgs

Hér að neðan finnur þú upplýsingar um opnunartíma, staðsetningu og þjónustu hverrar einingar.

Hvenær er opið í byggingum Háskólans?
Þjónustuborð

Þjónustuborðið á Háskólatorgi er oft fyrsti viðkomustaður nemenda sem leita upplýsinga og aðstoðar. Í sumum tilvikum sinnir það einnig afgreiðslu fyrir þjónustueiningar sem þar eru til húsa.

Þar getur þú til dæmis fengið vottorð og námsferilsyfirlit, keypt prentkvóta og aðgang að íþróttahúsi, fengið aðstoð við aðgang að Uglu og margt fleira.

Upplýsingar um frekari þjónustu sem Þjónustuborðið veitir er að finna í greinum hér á Þjónustumiðjunni.

Upplýsingatæknisvið - tölvuþjónusta

Upplýsingatæknisvið Háskóla Íslands hefur umsjón með lykilkerfum og tölvuþjónustu Háskólans, þar á meðal Uglu, SmáUglunni, Eduroam (þráðlausu neti Háskólans), tölvuverum og prenturum á háskólasvæðinu.

Tölvuþjónusta Upplýsingatæknisviðs er staðsett á sama stað og Þjónustuborðið á Háskólatorgi. Þar fá notendur leiðbeiningar og aðstoð við tölvutengd mál.

Leiðbeiningar um úrlausn algengra tölvutengdra málefna má einnig finna á Þjónustumiðju Háskóla Íslands.

Nemendaskrá

Nemendaskrá Háskóla Íslands er þjónustueining fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk skólans og heldur skrá yfir alla nemendur skólans.

Skráin er sá grunnur sem allt skipulag námsins byggist á, s.s. stundaskrár, próf, stofubókanir, bókakaup og fleira.

Nemendaskrá hefur m.a. umsjón með umsóknum um grunnnám, skrásetningu nemenda, skráningu í sjúkrapróf, innheimtu skrásetningargjalds og brautskráningu nemenda.

Nemendaráðgjöf

Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands styður þig í námi og undirbýr þig fyrir næstu skref. 

Þú getur fengið aðstoð með: 

  • námstækni, prófundirbúning og próftækni 
  • atvinnuleit, atvinnuviðtöl og ferilskrárgerð 
  • námsval og ákvarðanir í námi 

Einnig er boðið upp á:

  • sértæk úrræði í námi 
  • ráðgjöf vegna fötlunar eða hömlunar 
  • persónulega og sálfræðilega ráðgjöf 

Námskeið og fræðsla 

Reglulega eru haldin hagnýt námskeið, t.d. um tímastjórnun, markmiðasetningu, prófundirbúning og lokaverkefni.

Einnig er tekið á móti þeim sem hyggja á nám við Háskóla Íslands.

Félagsstofnun stúdenta - FS

Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun, sem er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir nemendur við Háskóla Íslands og er aðalmarkmið þess að bjóða nemendum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði nemenda. Í dag rekur FS:

Bóksala stúdenta

Bóksala

Bóksala stúdenta sér nemendum Háskóla Íslands fyrir kennslubókum og öðrum námsgögnum á sanngjörnu verði.

Bóksalan þjónustar einnig aðra háskóla, framhaldsskóla og ýmsar stofnanir og býður upp á fjölbreytt úrval fræðirita og handbóka.

Hægt er að versla bæði í verslun og á vef Bóksölunnar, þar sem boðið er upp á heimsendingu.

Bókakaffi stúdenta og Kaupfélag stúdenta eru staðsett í Bóksölu stúdenta.
 

Stúdentaráð

Stúdentaráð Háskóla Íslands er skipað 27 stúdentum við skólann. Verkefni ráðsins eru mörg og fjölbreytt, allt frá hagsmunabaráttu fyrir stúdenta yfir í skemmtilega viðburði eins og Októberfest.

Á skrifstofu Stúdentaráðs starfar einnig hagsmuna- og lánasjóðsfulltrúi sem getur liðsinnt nemendum sem telja að brotið hafi verið á rétti þeirra.

Stúdentaráð heldur úti vefnum student.is þar sem er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.

Kort af Háskólatorgi

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg