Greinar um þetta efni

Tölvuver

Upplýsingatæknisvið Háskólans rekur tölvuver víðs vegar um Háskólasvæðið. Opnunartími tölvuvera er sá sami og almennur opnunartími viðkomandi byggingar.

Notendur skrá sig inn á vélarnar með sama notendanafni og lykilorði og notað er í Uglu. Fyrrverandi og brautskráðir nemendur hafa ekki aðgang að tölvuverunum.

Hægt er að nálgast og vista gögn í gegnum OneDrive í tölvuverunum.

Prentara má finna í sumum tölvuverum. Kaupa þarf prentkvóta til að prenta út.

Bókanir tölvuvera

Beiðnir um tímabókanir í tölvuver fyrir námskeið eða ráðstefnur skal senda á netfangið kennslustofur@hi.is eða hafa samband við Þjónustuborð Háskólatorgs í síma 525 4000.

Hvar er laus tölva í tölvuveri?

Þú finnur upplýsingar um lausar tölvur á vefnum http://labstats.hi.is/.

Í Uglu undir Tölvuþjónusta → Tölvuver → Stundatöflur tölvuvera er hægt að sjá stundatöflur tölvuvera og þannig skipulagt fyrirfram hvaða tölvuver þú vilt nota á ákveðnum tímum.

Hvar finn ég Tölvuver?

Staðsetning

Algeng Vandamál

Bilun í vélbúnaði

Ef eitthvað bilar í tölvuverunum þá er hægt að láta vita í gegnum Uglu undir Tölvuþjónusta → Tölvuver og kennslustofur → Tilkynning um bilun.

Það vantar hugbúnað í tölvuver
Aðeins starfsfólk getur beðið um uppsetningu á hugbúnaði í tölvuverum, það er gert í gegnum Uglu undir Tölvuþjónusta → Tölvuver og kennslustofur → Beiðni um uppsetningu hugbúnaðar.
"Your account has time restrictions that prevent you from logging on at this time"
Þú ert brautskráður nemandi og hefur misst aðgang að tölvuverunum. Þú getur séð stöðuna þína inn á Uglu undir Uglan mín → Námskeiðin mín.
Ef þú ert nemandi en skráður sem brautskráður þá verður þú að tala við Nemendaskrá eða deildina þína. Ef þú vinnur fyrir skólann þá verður þú að biðja um nýtt notendanafn frá deildinni þinni.
"We can't sign you in with this credential because your domain isn't available"
Tölvan getur ekki tengst netinu. Oftast virkar að enduræsa tölvunna með því að halda niðri power takkanum og kveikja síðan aftur á tölvunni. Ef það virkar ekki látið þá vita í gegnum Uglu undir Tölvuþjónusta → Tölvuver og kennslustofur → Tilkynning um bilun.

Umgengnisreglur í tölvuverum

Umgengnisreglur í tölvuverum

Reglur um umgengni í tölvuverum:

  • Sýnið tillitsemi gagnvart öðrum notendum!
  • Óheimilt er að neyta matar og drykkjar í tölvuverum. Hins vegar má vera með drykki í lokuðum fjölnota ílátum.
  • Gangið snyrtilega um og takið til eftir ykkur áður en þið yfirgefið tölvuver!
  • Óheimilt er að “taka frá” tölvu á einn eða annan hátt. Ef notandi yfirgefur tölvu í lengri tíma er öðrum notendum frjálst að yfirtaka hana, þó svo forrit séu í gangi á tölvunni.
  • Óheimilt er að skilja tölvu eftir opna ef farið er frá henni.
  • Notkun farsíma er óheimil öðrum en starfsfólki Háskólans.
  • Rýmið tölvuver tafarlaust þegar húsinu er lokað og þegar kennarar eða annað starfsfólk HÍ óska þess.
  • Notkun tölvubúnaðar UTS til tölvuleikja er ekki bönnuð, en sú almenna regla gildir að iðkendur tölvuleikja skuli víkja athugasemdalaust fyrir öðrum notendum ef um það er beðið.

Verði nemandi uppvís að broti á ofangreindum reglum, má hann eiga von á tafarlausri brottvísun úr tölvuveri.

Við hvetjum einnig notendur að kynna sér almennar húsreglur Háskóla Íslands.

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
mán-fim 08:30-16:00
fös 08:30-15:00
hjalp@hi.is
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg