Ugla er innri vefur HÍ. Þar nálgast þú allar helstu upplýsingar um nám og námsframvindu. Skráningar, sjálfsafgreiðsla og greiðslur fara einnig fram í gegnum Uglu.
Í Uglunni eru líka tilkynningar, fræðsla og upplýsingar um þjónustu. Þar er að finna smáauglýsingar, ýmis kerfi og verkfæri sem nýtast í námi og starfi, og margt fleira
Gott er að temja sér að skrá sig inn á Uglu daglega. Svör við algengum vandamálum við innskráningu. Þau dæmi sem eru tekin hér að neðan eru ekki tæmandi listi yfir þau fjölmörgu verkfæri og þjónustur sem finna má í Uglu.
Inni á Uglu finnur þú allt sem snýr að náminu þínu.
- Stundaskrá
- Canvas
- Aðgangur að tölvupósthólfi
- Aðgangur að Office pakkanum og öðrum hugbúnaði
- Einkunnir og staða námsferils
- Tölfræði einkunna
- Próftöflur
- Prófasöfn
Á forsíðu Uglunnar fer fram skráning og greiðslur fyrir eftirfarandi atriði - í samræmi við kennslualmanak.
- Námskeið – bæði í og úr námskeiðum (sjá kennslualmanak)
- Greiðsla skrásetningargjalda
- Breytingar á námsleið
- Árleg skráning í námskeið fyrir komandi skólaár
- Endurtökupróf
- Úrræði í námi
- Brautskráning
- Sjálfsafgreiðsla vottorða
- Staðfestingar á skólavist fyrir ytri kerfi (t.d. Strætó og Parka)
- Skráning á viðburði þar sem við á
- Kaup á prentkvóta
- Umsókn um stúdentakort
- Innri vefur fræðasviðanna
- Sértækar upplýsingar
- Viðburðir á vegum fræðasviðsins
- Sérreglur fræðasviða og deilda
- Sniðmát lokaverkefna
Starfsmanna-Ugla veitir starfsmönnum aðgang að fyrri námsferli sínum (hafi starfsmaður verið nemandi Háskólans) og eru nemenda-Ugla og starfsmanna-Ugla samofnar. Mikilvægt er að starfsmenn noti starfsmannanetfang og starfsmanna-Uglu í starfsmannamálum, en nemandanetfang og nemanda-Uglu og netfang fyrir þau atriði sem tengjast eigin námi við Háskólann.
- Stundaskrá
- Mannauðsmál
- Viðburðir
- Styrkir og sjóðir
- Vinnustund
SmáUglan er app sem hægt er að sækja í snjallsíma og spjaldtölvur í App Store fyrir Apple og Play Store fyrir Androit. Þar er auðvelt að nálgast helstu upplýsingar sem notendur Uglu nýta daglega.
Smáuglan býður ekki upp á sjálfsafgreiðslur, skráningar né greiðslur. Starfsmenn geta notað Smáuglu til að stimpla sig inn í Vinnustund.
Brautskráðir nemendur halda aðgangi að Uglu eftir brautskráningu, þó með ákveðnum takmörkunum. Aðgangur að forritum lokast, að undanskildri vefútgáfu af Office pakkanum. Brautskráðir nemendur halda einnig aðgangi sínum að háskólanetfanginu sínu ævilangt.
Hætti nemandi námi, án þess að ljúka því er aðgangi að Uglu lokað ásamt nemandanetfangi og aðgangi að öllum hugbúnaði í boði Háskóla Íslands.