Greinar um þetta efni

Bílastæði

Bílastæði við Háskóla Íslands eru gjaldskyld.

Gestir 

Bílastæðin á háskólasvæðinu eru opin öllum gegn gjaldi. Gestir greiða alltaf tímagjald og geta ekki verið með áskrift.

Skráning í áskrift

Gjaldtaka er virka daga frá kl. 7:00 til 17:00.  Mánaðaráskrift kostar 1.500 kr. og fer skráning í áskrift fram í gegnum Parka appið.

Starfsfólk og nemendur HÍ þurfa að gefa Parka leyfi í Uglu til að fá staðfestingu á námi eða starfi við háskólann.

Tímagjald á öllum stæðum er 230 kr. (sama og verðflokkur P4 hjá Bílastæðasjóði).

Athugaðu að réttur bíll sé skráður í appinu

Hver einstaklingur getur skráð fleiri en eitt bílnúmer í áskrift en aðeins eitt getur verið virkt í einu. Ný númer eru skráð í Parka-appinu og í áskriftarhlutanum velur þú hvaða bíll á að vera virkur hverju sinni. Ef þetta gleymist áttu á hættu að fá sekt.

Segja upp áskrift

Vakin er athygli á því að notandi sem er í áskrift að bílastæðum við Háskóla Íslands í gegnum Parka appið ber sjálfur ábyrgð á því að segja upp áskrift í appinu sé þess óskað. Ef aðilar vilja hætta í áskrift, yfir sumartímann til dæmis, er það á þeirra ábyrgð að segja upp áskrift fyrir frí og skrá sig aftur í áskrift að fríi loknu. 

Að öllu óbreyttu endurnýjast áskriftarleið Parka sjálfkrafa mánaðarlega.

Bílastæðum er skipt í tvo flokka

  1. Valin skammtímastæði (H1) nálægt byggingum eru gjaldskyld með tímagjaldi.
  2. Tímagjald er tekið af öðrum stæðum, en starfsfólk og nemendur geta nýtt þau sem langtímastæði með mánaðaráskrift (H2).

    Kort - P.png

Annað

  • Aðilar með P-merki og stæðiskort fyrir hreyfihamlaða leggja án endurgjalds.
  • Starfsmenn og nemendur í Læknagarði geta nýtt sömu kjör á Landspítalasvæðinu.
  • Samráð hefur verið haft við Landspítalann og aðrar nágrannastofnanir svo nemendur og starfsfólk á Heilbrigðisvísindasviði, sem eiga erindi bæði á lóð HÍ og LSH, þurfi ekki að borga tvisvar fyrir stæði.
  • Fyrirspurnir sem tengjast appinu, greiðslum, sektum og slíku eiga að berast til Parka. Ef það er eitthvað annað sem tengist bílastæðamálum má senda póst á bilastaedi@hi.is.

Nánari upplýsingar um gjaldtöku fyrir bílastæði og leiðbeiningar fyrir áskrift í Parka appinu er að finna á upplýsingasíðu Parka um bílastæði við HÍ.

Parka lausnir ehf. mun annast þjónustu við rekstur og gjaldtöku fyrir bílastæðin.

Þjónustuvefur

Þjónustuver, sími: 519 7888

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg