Greinar um þetta efni

Þráðlaust net - Eduroam

Eduroam er kerfi samtengdra auðkenningarþjóna hjá rannsókna- og háskólanetum víðsvegar í heiminum.

Þráðlaust net (eduroam) er á öllu Háskólasvæðinu og auðvelt er að tengjast því hvar sem er. Til að fá aðgang þarf einungis að vera með HÍ-netfang (notandanafn@hi.is).

Eduroam-net er að finna víða erlendis og auðkenningin frá HÍ er tekin gild á þeim stöðum.

Öllum notendum ber að fylgja notkunarskilmálum RHnets.

Notendur frá öðrum skólum notast við skírteini og notendanöfn frá sínum skólum til þess að tengjast við Eduroam hjá HÍ.

Hvernig tengist ég Eduroam?

Windows

Hér er sýnt hvernig þið setjið inn Eduroam netstillingar í Windows.

Athugið að það er aðeins hægt að tengjast Eduroam með Windows 10 eða nýrra.

  1. Byrjið á því að sækja uppsetningarskrána.
  2. Opnið skrána og smellið á „Next“:
    Skref 1_0.png
  3. Smellið á „OK“:
    Skref 2_0.png
  4. Nú þarf að slá inn HÍ netfangið ykkar og lykilorð (notandnafn@hi.is), eins og í Uglu, smellið svo á "Install":
    Skref 3 ísl_0.png
  5. Nú kemur viðvörun. Smelltu á "Yes":
    Skref 4b.png
  6. Bíðið eftir að uppsetningin klárist:
    Skref 5_0.png
  7. Þá á að vera hægt að tengjast eduroam þegar það er í boði. Smellið á „Finish“:
    Skref 6_0.png

Tengjast við Eduroam:
Þegar tækið er í byggingu þar sem eduroam er aðgengilegt (hvar sem er í heiminum) þá er það tengt svona:

  1. Smellið á net-íkonið 🌐 neðst til hægri og síðan skal smella á örina við hlið þráðlausa íkoninu 🛜:
    eduroam tengjast 1.png
  2. Hér sést listi yfir þráðlaus net. Veljið „Eduroam“ og hakið við "Sjálfvirk tenging"(Connect automatically) til að tölvan tengist sjálfkrafa netinu næst þegar hún sér eduroam netið. Smellið loks á "Tengjast"(Connect):
    eduroam tengjast 2.png
MacOS

Hér er sýnt hvernig þið setjið inn eduroam netstillingar í MacOS.

Athugið að það er aðeins hægt að tengjast Eduroam með MacOS 10.13 eða nýrra.

  1. Smellið á Wi-Fi íkonið 🛜🔗 efst til hægri . Kveikið á þráðlausa sambandinu ef það er slökkt. Veljið svo "Eduroam":
    Screenshot 2023-04-24 at 12.11.30.jpg
  2. Nú þarf að slá inn HÍ netfang og lykilorð ykkar (notandanafn@hi.is). Hakið við "Remember this network" til að tölvan tengist sjálfkrafa við Eduroam næst þegar hún sér eduroam netið. Smellið næst á "OK":
    eduroam macos 2.png
  3. Hér þarf að samþykkja rótarskírteini HÍ til að geta tengst. Athugaðu að það gæti þurft að samþykkja það tvisvar:
    Screenshot 2023-04-25 at 12.42.02.jpg
  4. Nú þarf að setja inn lykilorð fyrir vélina sjálfa til að leyfa þessar breytingar:
    eduroam macos 4.png.png
iOS (iPhone og iPad)

Hér er sýnt hvernig tengst er eduroam í iPad og iPhone.

Athugið að það er aðeins hægt að tengjast Eduroam með iOS 11 eða iPadOS 13.1 eða nýrra.

  1. Opnið „Settings" og smellið á „Wi-Fi“.
    Athugið hvort ekki sé örugglega kveikt á þráðlausa netinu (grænt).
  2. Veljið Eduroam undir „Choose a Network“. Það gæti tekið nokkrar sekúndur fyrir Eduroam að birtast eftir að kveikt er á Wi-Fi.
    Screenshot 2023-04-25 at 12.47.26.jpg
  3. Nú þarf að slá inn HÍ netfang og lykilorð (notandanafn@hi.is) og svo er smellt á "Join":
    eduroam iOS 2.png
  4. Smellið á "Trust" þegar þessi gluggi birtist til að treysta rótarskírteininu:
    Screenshot 2023-04-25 at 12.49.35.jpg
Android

Hér er sýnt hvernig þið setjið inn Eduroam netstillingar í Android tæki.

Það er misjafnt eftir símaframleiðanda hvernig útlitið á þessu og ferlið er nákvæmlega. Hér að neðan er sýnt hvernig þetta er í Samsung - Android 12.

  1. Byrjið á að sækja rótarskírteinið (þetta þarf að gerast í tækinu sem á að tengja við eduroam).
  2. Ef það birtast skilaboð um að síminn geti ekki sett upp rótarskírteinið fylgið þá leiðbeiningum hér að neðan, annars skal fara í skref 9:
    Skref 1.png
  3. Opnið stillingarnar (settings) fyrir símann:
    skref 2.png
  4. Smellið á leitina:
    skref 3b.png
  5. Leitið að "CA Vottorð"(CA- Certificate) og smellið á það:
    skref 4.png
  6. Smellið á "Wi-Fi certificate":
    skref 5.png
  7. Staðsetjið "Niðurhal“(Download) möppuna en þar ætti skráin að vera sem var sótt í skrefi 1:
    Skref 6.png
  8. Hakið við „certymccert.cer“ og smellið á "Done". Gefið þessu skírteini nafn (til dæmis „Eduroam“):
    skref 7.png
  9. Opnið Wi-Fi yfirlitið og veljið Eduroam:
    skref 9.png
  10. Fyllið út formið með eftirfarandi upplýsingum (smellið á "more" til þess að sýna allt):
    • Identity: HÍ netfangið ykkar (notandanafn@hi.is)
    • Password: HÍ lykilorðið ykkar.
    • CA certificate: Veljið skírteinið sem var vistað í skrefi 8 eða "UTS-AD-CA".
    • Anonymous Identity: HÍ netfang (notandanafn@hi.is)
    • Domain: hi.is
      skref 10a.png
  11. Smellið á "tengjast" (Connect):

Nú ætti tækið að vera tengt eduroam.

Chrome OS

Hér er sýnt hvernig þið setjið inn eduroam netstillingar fyrir Chrome OS.

  1. Byrjið á því að sækja uppsetningarskránna.
  2. Opnið Chrome vafrann og stimplið inn þessa slóð chrome://network/#general
  3. Hér er smellt á "Choose File" undir "Import ONC file":eduroam chromeOS 1.png
  4. Staðsetið skránna úr skrefi 1 hún ætti að vera í "Download" möppunni. Veljið skránna og smellið á "Open":eduroam chromeOS 2.png
  5. Smellið á WiFi íkonið neðst í hægra horni og veljið Eduroam á listanum:
  6. Fyllið inn í reitina samkvæmt leiðbeiningum hér að neðan:
    • EAP method: PEAP
    • Phase 2 authentication: MSCHAPv2
    • Server CA certificate: University of Iceland Certification...
    • Identity: HÍ netfangið ykkar (notandanafn@hi.is)
    • Password: HÍ lykilorðið ykkar
    • Domain: hi.is
    • Save identity and password: Hakið við hér ef þetta er ykkar tölva. Þá þurfið þið ekki að setja inn þessar upplýsingar í hvert sinn sem þið tengist Eduroam
  7. Smellið næst á "Connect":eduroam chromeOS 3 isl.png

Nú á vélin að vera tengd Eduroam.

Linux

Hér er ein leið til að tengjast eduroam á Linux

  1. Byrjið á að sækja Eduroam skírteinið.
  2. Farið inn í WiFi stillingarnar fyrir eduroam og setjið inn eftirfarandi stillingar:
    • Security: WPA & WPA2 Enterprise
    • Authentication: Protected EAP (PEAP)
    • Anonymous identity: HÍ netfangið ykkar en má líka prófa að hafa þetta tómt
    • CA certificate: ca.pem skírteinið sem þú sóttir hér að ofan. Ef það gengur ekki að tengjast er hægt að prófa að haka í "No certificate is required".
    • PEAP version: Automatic
    • Inner authentication: MSCHAPv2
    • Username: HÍ netfangið ykkar (notandanafn@hi.is).
    • Password: HÍ lykilorðið ykkar.
    • Domain: hi.islinuxeduroamklippt.png

Hvar er hægt að tengjast Eduroam?

Á vefsíðu Eduroam er hægt að sjá kort af þeim stöðum sem Eduroam er aðgengilegt.

Algeng vandamál

Vandamál við að tengjast Eduroam í Windows

Ef tölvan biður um auðkenni aftur þá hafa þau verið slegið inn vitlaust, munið að setja @hi.is

Aðeins er hægt að tengjast Eduroam með Windows 10 eða nýrra.

Ekki er hægt að tengjast Eduroam ef viðkomandi er brautskráður. Staðan sést á Uglu undir Uglan mín → Námskeiðin mín.

  • Ef þú ert nemandi en skráður sem brautskráður þá verður þú að tala við Nemendaskrá eða deildina þína.
  • Starfsfólk á ekki að notast við nemendaaðganga við störf, þau eiga að fá nýtt notandanafn frá deildinni.
Vandamál við að tengjast Eduroam í MacOS

Athugið að það er aðeins hægt að tengjast Eduroam með MacOS 10.13 eða nýrra.

Rótarskírteini skapa helstu vandamálin við að nota Eduroam. Þau eru ýmist sett upp beint sem rótarskírteini eða með forstillingarskrá (e. profile). 

  1. Opnið "Keychain Access" með "Spotlight Search" (Command+Spacebar). 
  2. Veljið "login" undir "Default Keychains". Leitið að "edurad" og eyðið þeim út (Smella+Control):faq1.jpg
  3. Keychain mun biðja þig um að staðfesta að þú viljir eyða skránni og svo að setja inn lykilorðið fyrir tölvuna. Það þarf að henda út öllum edurad leyfisskránum og síðan að skrá sig inn eins og sýnt er í leiðbeiningunum:faq2.jpg

Einnig er hægt að henda út forstillingarskránni, ef þannig hefur verið sett upp.

  1. Opnið "System Preferences" (macOS 12 og eldri) eða "System settings" (macOS 13 eða nýrri).
  2. Farið beint í Profiles ef þið eruð á macOS 12 eða eldri. Annars er farið í „Privacy and Security" og þar er valið "Profiles" neðst á listanum:faq3.jpg
  3. Veljið Eduroam forstillinguna og smellið á mínus. Setjið inn lykilorðið fyrir tölvuna:faq4.jpg

Hægt er að ná í Eduroam skírteinið handvirkt og setja það upp.

  1. Opnið "System Preferences/Settings" og "Profiles" ef tölvan gerir það ekki sjálkrafa:faq5.jpg
  2. Smellið á skírteinið og síðan á "Install". Stýrikerfið vara þig við að þú sért að fara að setja inn forstillingarskrá. Þú velur "Continue":faq6.jpg
  3. Setjið inn HÍ netfangið ykkar og lykilorð og smellið á „Install". Þú munt síðan fá viðvörun þess efnis að það verði að setja @ í netfangið. Smelltu á „Install" og settu síðan inn lykilorðið fyrir tölvuna:faq7.jpg
  4. Núna þarftu að bíða í smá tíma þar til þú færð „Verified":faq8.jpg

Þú þarft að vera viss um að notandanafn (notandanafn@hi.is) og lykilorð sé rétt. Þú getur reynt að opna "incognito" / "private" glugga í vafranum og skráð þig inn á Uglu. Eða slegið lykilorðinu inn  í Uglu í staðinn fyrir að láta tækið fylla það út sjálkrafa.

Ekki er hægt að tengjast Eduroam ef viðkomandi er brautskráður. Staðan sést á Uglu undir Uglan mín → Námskeiðin mín.

  • Ef þú ert nemandi en skráður sem brautskráður þá verður þú að tala við Nemendaskrá eða deildina þína.
  • Starfsfólk á ekki að notast við nemendaaðganga við störf, þau eiga að fá nýtt notandanafn frá deildinni.
Hægt þráðlaust net eða lélegt samband

Netið getur verið hægt vegna mikils álags. Þið getið framkvæmt hraðapróf og sent niðurstöðuna með IP tölunni á Upplýsingatæknisvið.

Missi tækið samband við Eduroam þá getur verið lélegt þráðlaust merki á viðkomandi stað.

Starfsfólk getur beðið Upplýsingatæknisvið um að athuga með þráðlausa netið, það er gert með því að búa til beiðni í gegnum þjónustugátt UTS, beiðnin þarf að innihalda niðurstöðu hraðaprófs ásamt IP tölu.

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
mán-fös 08:00-16:00
Þjónustugátt UTS
hjalp@hi.is
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg