Hvort sem þú ert nýnemi eða hefur verið við Háskóla Íslands um tíma geta vaknað spurningar um hvert best er að leita. Hér finnur þú yfirlit yfir helstu þjónustuleiðir og upplýsingar um hver getur aðstoðað þig eftir því hvað erindið þitt snýst um.
Ef þú finnur ekki svarið sem þú leitar að mælum við með að skoða fleiri greinar hér á Þjónustumiðjunni. Þar er að finna leiðbeiningar og upplýsingar um helstu þjónustu fyrir nemendur.
Námsáætlanir, verkefnalýsingar og skilafresti finnur þú í Canvas.
Ef spurningin snýr að kennslu, verkefnum eða skilafrestum skaltu hafa samband við kennara námskeiðsins.
Þarftu aðstoð við ritgerð eða önnur skrif? Ritver Háskóla Íslands veitir leiðbeiningar um framsetningu og fræðileg skrif.
Nemendaráðgjöf býður einnig upp á námskeið og einstaklingsráðgjöf um skipulag náms og verkefnavinnu.
Kennsluskrá veitir yfirlit yfir námsleiðina þína og þau námskeið sem í boði eru.
Þarftu ráðgjöf um námskeiðaval eða námsframvindu? Hafðu samband við deildina þína eða Nemendaráðgjöf.
Flest námsvottorð geturðu sótt í sjálfsafgreiðslu, þér að kostnaðarlausu í Uglu undir Vottorð og námsferilsyfirlit.
Námsferilsyfirlit sem staðfestir brautskráningu (2015 og seinna) má finna á island.is
Ef þú þarft sértækt vottorð eða ert með fleiri en einn virkan námsferil geturðu óskað eftir vottorði í gegnum Þjónustumiðju.
Í sumum tilvikum þarf deildin að staðfesta upplýsingar áður en vottorð er gefið út.
Greiðslur sem ekki er hægt að ganga frá í gegnum Uglu fara fram á Þjónustuborði Háskólatorgi.
- endurtökupróf með heimild
- enduropnun ferils
- leyfisgjald
- námskeiðagjöld nemendaráðgjafar.
- aðgangur að íþróttahúsinu
Deildin þín sér um umsóknir um:
- undanþágur frá reglum og skyldunámskeiðum,
- leyfi frá námi, svo sem vegna veikinda eða barneigna.
- mat á fyrra námi og einingum
- heimild til skráningar í námskeið í þriðja sinn eftir tvífall,
- heimild til skráningar í endurtökupróf þegar tvífall krefst samþykkis deildar.
Áður en þú tekur ákvörðun um að hætta námi er mælt með að ræða við Nemendaráðgjöf. Þar geturðu fengið ráðgjöf um stöðuna og kynnt þér þau úrræði sem standa þér til boða.
Til að segja þig úr námi þarftu að senda skriflega beiðni úr @hi.is netfanginu þínu til Nemendaskrár.
- Þjónustumiðjan býður upp á leiðbeiningar fyrir öll helstu vandamál eins og tveggja þátt auðkenninguna
- senda beiðni á Upplýsingatæknisvið
- Þjónustuborð Upplýsingatæknisviðs á Háskólatorgi