- Aðgangur í Háskólaræktina kostar 12.000 krónur fyrir háskólaárið.
- Eingöngu nemendur og starfsfólk HÍ geta keypt aðgang og er það gert á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi.
- Aðgangur gildir í alla auglýsta tíma, í tækjasal og gufubað. Notendur fá ekki afhent kort heldur er hlið í anddyri þar sem hægt er að skrá sig inn með kennitölunni sinni.
Athugið að aðeins þau sem eru skráð fyrir aðganginum mega nota hann. Komi í ljós að aðrir nýti aðganginn verður honum lokað.
Afgreiðslutími:
- Mánudaga - fimmtudaga: 7:00 - 22:00
- Föstudaga: 7:00 - 20:00
- Laugardaga: 8:00 - 18:00
Íþróttahúsið er lokað á hátíðisdögum, yfir jól og áramót og sex vikur á miðju sumri.
Íþróttahúsið er eingöngu ætlað nemendum og starfsfólki Háskólans.
Já, hægt er að leigja íþróttasalinn fyrir lokaða hópa á opnunartíma íþróttahússins.
Leigan fyrir 45 mín:
- 3000 kr. milli 07:00 - 16:00 á virkum dögum
- 4000 kr. eftir kl 16:00 og um helgar
Óskað er eftir bókun með því að senda póst á ithrottahus@hi.is. Ef tíminn sem óskað er eftir er laus þarf að greiða gjaldið á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.
Þú sendir tölvupóst á netfangið ithrottahus@hi.is.
Íþróttahúsið er gamalt og því miður ekki vel útbúið fyrir hjólastóla. Þar eru háir þröskuldar og engin lyfta.
Aðgangur að Íþróttahúsinu miðast við háskólaárið. Að hausti er hægt að kaupa aðgang annað hvort fyrir allt árið á 12.000 kr. eða eingöngu fyrir haustmisserið á 6.000 kr. Eftir áramót er einungis hægt að kaupa aðgang fyrir vormisserið, einnig á 6.000 kr.
Kort og þjálfun
Háfit - Fjarþjálfun háskólanema