Greinar um þetta efni

Umsókn um framhaldsnám

Tekið er við umsóknum um framhaldsnám tvisvar á ári, að vori og hausti. Mismundandi er eftir námsgrein hvaða fylgigögn þurfa að fylgja umsókninni og eru einungis þær umsóknir sem innihalda umbeðin fylgigögn afgreiddar.

Inntökuskilyrði í framhaldsnám eru mismunandi eftir námsgreinum og er miklvægt að kynna sér þau á síðum námsleiða í Kennsluskrá og á upplýsingasíðu hverrar námsleiðar.

Þau sem eru að ljúka grunnnámi geta sótt um framhaldsnám á næsta misseri með fyrirvara um brautskráningu.

Nemendur sem lokið hafa grunnnámi frá HÍ þurfa ekki að skila afriti af prófskírteini.

Umsóknarfrestur

Umsóknir fyrir nám sem hefst á haustmisseri:

Móttaka umsókna hefst á Háskóladaginn sem er árlega í lok febrúar eða byrjun mars

Móttöku lýkur 15. apríl

Fylgigögnum þarf að skila í síðasta lagi 22. apríl.

Umsóknir fyrir nám sem hefst á vormisseri

Móttaka umsókna hefst 15. september

Móttöku umsókna lýkur 15. október

Fylgigögnum þarf að skila í síðasta lagi 22. október

Inntaka í nám á vormisseri er aðeins í boði í hluta námsleiða. Þær námsleiðir sem hægt er að sækja um birtast í Umsóknagáttinni og á yfirliti yfir námsleiðir sem taka við umsóknum.

Þú finnur allar nánari upplýsingar um umsókn um framhaldsnám á heimasíðu HÍ.

 

Var þessi grein gagnleg?
1 af 1 fannst þessi grein gagnleg