Áður en prófið hefst
Áður en þú mætir í próf skaltu ganga úr skugga um eftirfarandi:
- Kynntu þér prófareglur Háskólans. Misferli getur leitt til agaviðurlaga.
- Ef þörf er á úrræði í prófi þarftu að sækja um fyrir 1. október (haust) eða 1. mars (vor)
- Vertu með Uglu-aðganginn þinn á hreinu (notandanafn og lykilorð).
Gott er að kynna sér almennar prófareglur fyrir prófatímabil sem og sértækar reglur á prófstað.
Upplýsingar um prófið eru yfirleitt í:
- námsáætlun námskeiðsins
- Canvas, til dæmis í tilkynningum frá kennara
- persónulegri próftöflu, ef við á
Athugaðu þetta fyrir prófið:
- hvar prófið fer fram?
- hvernig prófið er uppbyggt?
- hvað má taka með í prófið?
- Innskráning og lykilorð í Uglu.
Próf geta farið fram á mismunandi stöðum eftir námskeiði og prófformi.
- Flest skrifleg staðpróf eru haldin í byggingum á Háskólasvæðinu.
- Gott er að kynna sér staðsetningu prófstofu fyrirfram.
- Samgöngur til og frá háskólasvæðinu
Fjarpróf
- Upplýsingar um framkvæmd fjarprófa má finna hér.
Heimapróf
- Heimapróf eru tekin utan prófstofu og nemendur hafa ákveðinn tíma til að skila svörum.
Próf geta verið með mismunandi fyrirkomulagi.
- Gagnapróf: Einnig kölluð „opin próf“. Kennari stýrir því hvort öll gögn eða aðeins tiltekin gögn megi fylgja nemendum í prófstofu.
- Gagnalaus próf: Einnig kölluð „læst“ eða „lokuð próf“. Nemanda er ekki heimilt að hafa nein gögn með í prófstofu.
- Próf á pappír: próf er tekið í prófstofu og svör skrifuð á prófblöð.
- Munnleg eða verkleg próf: nemandi svarar spurningum eða leysir verkefni fyrir kennara og/eða prófdómara.
- Próf í Inspera: getur verið læst með eða án fylgigagna, eða opið gagnapróf.
- Próf í Canvas: framkvæmd og fyrirkomulag er á vegum kennara.
Inspera er rafrænt prófakerfi Háskóla Íslands. Nemandi getur í langflestum tilfellum notað eigin tölvu fyrir Inspera-próf óháð því hvort um sé að ræða gagna- eða gagnalaus próf, en kerfið býður upp á að loka á önnur forrit og upplýsingar en það sem er heimilt í prófum.
- Læst Inspera-próf loka á önnur kerfi í tölvunni á meðan prófi stendur. Opin Inspera-próf leyfa notkun annars hugbúnaðs og aðgang að öllum gögn.
- Mikilvægt er að hafa lokið við að setja upp Inspera-vafrann (SEB) áður en Inspera-próf hefst.
Nemendur sem taka próf á Inspera-vafra standa til boða lánstölvur. Sé prófið á vegum prófaskrifstofu eru lánstölvur á prófstað og nemandi þarf einungis að gefa sig fram við prófvörslu sem útvegar lánstölvu.
Háskólinn býður ýmis úrræði sem geta veitt stuðning í prófum, til dæmis:
- vegna námsörðugleika,
- fötlunar
- langvarandi veikinda
- eða prófkvíða
Sækja þarf um slík úrræði hjá Nemendaráðgjöf HÍ, fyrir 1. október á haustönn og 1. mars á vorönn.
Foreldrar með barn á brjósti geta einnig sótt um úrræði sem tengjast brjóstagjöf í prófum.
Til að fá slíkt úrræði þarf að hafa samband við úrræðateymi nemendaráðgjafar.
Próf í Canvas eru alltaf á vegum kennara en ekki prófaskrifstofu. Nemandi ber ábyrgð á að upplýsa kennara um lengdan próftíma og úrræði.
Gott er að kynna sér hvernig skuli bregðast við veikindum á prófatíma og ef viðunandi einkunn er ekki náð.
Sjúkra- og endurtökupróf vegna haustmisseris eru haldin síðustu daga fyrir jól og fyrstu daga eftir áramót. Dagsetning miðast við hvenær upphaflega prófið var haldið.
Sjúkra- og endurtökupróf vegna vormisseris eru haldin á fjögurra til fimm daga tímabili í lok maí eða byrjun júní, samkvæmt nánari ákvörðun prófstjóra.
Ítarlegri upplýsingar um próf má finna á aðalvef Háskólans.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Prófaskrifstofa - 3. hæð í Setbergi.
Sími: 525-5278
Almennar fyrirspurnir um próf: profstjori@hi.is
Aðstoð vegna Inspera: inspera@hi.is
Upplýsingar um fjarpróf: fjarprof@hi.is
Umsóknir um fjarpróf: Umsókn um fjarpróf hjá Háskóla Íslands