Með Teams er hægt að hringja innan Háskóla Íslands. Starfsfólk getur sótt um símanúmer fyrir Teams til að hringja utan Háskóla Íslands.
Símanúmer Starfsfólks
Sótt er um númer í Uglu > Tölvuþjónusta > Umsóknir > Símanúmer. Skrá þarf greiðanda.
Númeri er sagt upp undir "Uppsögn símanúmers" á sömu síðu.
Ef breyta þarf um greiðanda á númeri þá þarf að senda inn beiðni með upplýsingum um greiðanda.
Sameiginleg númer (hringi hópar)
Ef stofna þarf sameiginlegt númer þá þarf að senda inn beiðni sem inniheldur númerið sem óskað er eftir og hverjir eiga að vera í hringi hópnum (Notandanöfn).
Áður en hægt er að bæta notanda við sameiginlegt númer þá þarf hann fyrst að hafa fengið símanúmer í Teams. Síðan er hægt að senda inn beiðni.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fös 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222