Greinar um þetta efni

Stofna Teams rás

Auðvelt er að bæta við Teams rás hjá teymum. Rásir geta verið opnar öllum í teyminu eða lokaðar.

Lokaðar rásir í teymi eru aðeins aðgengilegar tilteknum meðlimum þess. Slík rás fær einnig lokaða SharePoint-möppu.

Svona er rás stofnuð:

  1. Smellið á punktana þrjá (...) hjá teyminu og veljið "Bæta við rás" (Add channel):Teams búa til rás 1.png
  2. Hér skal gefa rásinni nafn. Það er valkvætt að skrifa lýsingu.
  3. Ef rásin á að vera aðgengileg öllum í teyminu þá er valið "Venjulegt" (Standard) undir tegund. Ef rásin á að vera aðgengileg aðeins tilteknum meðlimum teymisins þá er valið "Einkamál" (Private):Teams búa til rás 2.5.png
  4. Smellið á "Búa til" (Create) til að klára uppsetningu á rásinni.
  5. Ef rásin er lokuð (Einkamál) þá er nú hægt að bæta við þáttakendum á rásina, aðeins er hægt að bæta við fólki sem eru nú þegar meðlimir teymisins:Teams búa til rás 3.png

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fös 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg