Greinar um þetta efni

Lánstölvur

Nemendur sem taka próf á Inspera prófakerfið geta fengið lánaða tölvur til próftöku. 

Sé prófið haldið á vegum prófaskrifstofu, eru tölvur á prófstað og nemandi þarf einungis að gefa sig fram við prófvörð og óska eftir lánstölvu. 

Sé prófið haldið á vegum kennara eða deildar þarf nemandi að setja sig í samband við kennara námskeiðsins og óska eftir tölvu. Kennari hefur samband við prófaskrifstofu og fær tölvur afhentar fyrir prófin, og skilar að prófi loknu.

Ætli kennari ekki að sækja tölvur fyrir próf, getur nemandi sett sig í samband við prófaskrifstofu og óskað eftir tölvu og sótt til prófaskrifstofu samkvæmt samkomulagi.

Smelltu hér til að sækja um tölvu. 

Próf sem birtast í próftöflu á Uglu eru haldin á vegum Prófaskrifstofu, önnur próf eru haldin á vegum kennara og deilda. 

 

Frekari upplýsingar og aðstoð

Prófaskrifstofa - 3. hæð í Setbergi.
Sími: 525-5278
Almennar fyrirspurnir um próf: profstjori@hi.is
Aðstoð vegna Inspera: inspera@hi.is
Upplýsingar um fjarpróf: fjarprof@hi.is
Umsóknir um fjarpróf: Umsókn um fjarpróf hjá Háskóla Íslands 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg