Allar persónuupplýsingar sem Háskóli Íslands safnar, nýtir eða vinnur með öðrum hætti eru meðhöndlaðar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Með persónuupplýsingum er átt við upplýsingar sem auðkenna tiltekinn einstakling eða væri hægt að nota í þeim tilgangi.
Vinnsla Háskóla Íslands á viðkvæmum persónuupplýsingum fer fram með stoð í lögum um persónuvernd og Reglugerð ESB 2016/679 um sama efni og í samræmi við ítrustu öryggiskröfur.
Þú getur óskað eftir afriti af þeim persónuupplýsingum sem Háskóli Íslands geymir um þig með því að koma á Þjónustuborðið Háskólatorgi og fylla þar út eyðublað. Athugaðu að framvísa þarf persónuskilríkjum þegar beiðni er lögð inn og við móttöku gagna.