Þú getur breytt námskeiðaskráningunni þinni í Uglu á auglýstum skráningartímabilum. Skráning í námskeið er jafnframt skráning í próf námskeiðsins.
Skráningarfrestir koma fram í Háskóladagatali.
Hvernig breyti ég námskeiðaskráningu?
Þegar opið er fyrir breytingar birtist borði á forsíðu Uglu.
- Skráðu þig inn í Uglu.
- Opnaðu skráninguna af forsíðunni.
- Skráðu þig í eða úr námskeiðum.
- Vistaðu breytingarnar.
- Athugaðu undir Uglan mín – Námskeiðin mín hvort breytingarnar hafi skilað sér.
Breytingar geta tekið nokkrar klukkustundir að birtast í stundatöflunni.
Í skráningu í Uglu færðu upp tillögur að námskeiðum miðað við námsár og lokin námskeið á þínum námsferli. Í því samhengi er einnig mikilvægt að skoða sína námsleið vel í kennsluskránni. Þar færðu yfirsýn yfir skyldunámskeið og valnámskeið eftir námsárum og upplýsingar um forkröfur námskeiða. Forkröfur segja til um hverju þarf að ljúka áður en námskeið er tekið og því mikilvægt að hafa þær í huga þegar þú skipuleggur þig. Ef þú þarft aðstoð við námsskipulag er hægt að ræða við deildina þína eða námsráðgjafa
- Skyldunámskeið (S): Þú þarft að ljúka öllum skyldunámskeiðum námsleiðarinnar.
- Bundið val (B): Þú velur tiltekinn fjölda námskeiða eða eininga úr afmörkuðum hópi.
- Valnámskeið (V): Þú velur námskeið samkvæmt þeim reglum sem gilda um námsleiðina..
Síðasti dagur til úrsagnar kemur fram í Háskóladagatali.
Farðu í Uglan mín – Námskeiðin mín. Ef enn er opið fyrir úrsögn birtist tákn við námskeiðið sem þú notar til að skrá þig úr því.
Síðasti dagur til úrsagnar kemur fram í Háskóladagatali.
Þegar þú skráir þig í námskeið skráist þú jafnframt í próf námskeiðsins.
Ef þú skráir þig úr námskeiðinu innan frests fellur prófaskráningin einnig niður. Eftir að úrsagnarfrestur er liðinn er ekki hægt að skrá sig úr prófinu. Ef þú mætir ekki færðu skráða fjarvist sem jafngildir falli.
Sendu Nemendaskrá tölvupóst úr HÍ-netfanginu þínu á nemskra@hi.is.
Taktu eftirfarandi fram í beiðninni:
- nafn;
- kennitölu;
- heiti námskeiðs;
- námskeiðsnúmer.
Gjald vegna endurtökuprófs er ekki endurgreitt.
Yfirleitt þarftu ekki að skrá þig sérstaklega í hlutapróf nema kennari taki annað fram.
Hlutapróf í námskeiðum Sálfræðideildar eru undantekning frá þessu.
Ef þú getur ekki breytt skráningunni sjálf eða sjálfur á auglýstu skráningartímabili skaltu senda Nemendaskrá beiðni úr HÍ-netfanginu þínu á nemskra@hi.is.
Taktu fram nafn, kennitölu, heiti og númer námskeiðsins. Í sumum tilvikum þarftu einnig samþykki deildarinnar fyrir skráningu.
Þú getur skráð þig í fjarnám ef námskeiðið er í boði í fjarnámi samkvæmt kennsluskrá.
Skráningin fer fram undir Uglan mín – Námskeiðin mín.
- Fullt nám er almennt 30 ECTS-einingar á misseri.
- Þú getur skráð þig í allt að 40 ECTS-einingar á misseri.
- Ef þú vilt taka fleiri einingar þarftu að sækja um það hjá deildinni þinni.