Mikilvægt
Eftir breytinguna þurfa allir notendur að setja sér nýtt lykilorð og skrá sig inn með nýju notendanafni. Nemendur fá allir ný notendanöfn.
Þann 25. júní 2026 verða framkvæmdar breytingar á tölvukerfum Háskólans á Hólum vegna sameiningar við kerfi Háskóla Íslands.
Breytingarnar verða framkvæmdar milli kl. 9:00 og 10:00 þann 25. júní 2026.
Á þeim tíma má gera ráð fyrir að tölvukerfi Háskólans á Hólum verði óaðgengileg. Einnig má búast við einhverjum truflunum 25. og 26. júní meðan gengið er frá lausum endum eftir breytinguna.
Hvað breytist?
Ugla
Öll gögn úr Uglu Háskólans á Hólum verða flutt í Uglu Háskóla Íslands.
Eftir breytinguna verður aðgangur að Uglu í gegnum:
Notendanöfn
Notendur verða fluttir úr miðlægri notendastýringu Háskólans á Hólum yfir í miðlæga notendastýringu Háskóla Íslands.
Öll notendanöfn munu enda á @hi.is.
Starfsmenn
- Halda núverandi notendanafni ef það er laust hjá Háskóla Íslands
- Fá nýtt notendanafn ef sami notandaaðgangur er þegar til hjá Háskóla Íslands.
Nemendur
- Allir nemendur fá nýtt notendanafn.
- Nemendur geta fengið upplýsingar um nýtt notendanafn með því að hafa samband við Tölvuþjónustu Háskóla Íslands.
Nýtt lykilorð
Eftir breytingu þurfa allir notendur að fá nýtt lykilorð
Hvernig breyti ég lykilorði?
- Farðu á https://lykilord.menntasky.is/.
- Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum Ísland.is.
- Veldu Háskóli Íslands.
- Smelltu á Breyta lykilorði.
Tölvupóstur og Microsoft 365
Eftir breytinguna er hægt að nálgast tölvupóst á:
https://outlook.hi.is
https://office.hi.is
Microsoft Authenticator
Ekki þarf að setja upp Microsoft Authenticator aftur. Forritið heldur áfram að virka þó gamla netfangið birtist þar áfram.
Flýtileiðir í Microsoft 365
Flýtileiðirnar (vöfflujárnið) í Microsoft 365 kunna að virka ekki sem skyldi fyrstu 24–48 klukkustundirnar eftir breytinguna.
Á meðan er hægt að nota beinar slóðir:
Outlook: https://outlook.hi.is
Teams: https://teams.hi.is
OneDrive: https://onedrive.hi.is
Frekari upplýsingar og aðstoð
Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fös 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222