Greinar um þetta efni

Breyting á námsleið/kjörsviði

Nemendur í grunnnámi geta sótt um breytingu á námsleið í sinni Uglu á eftirfarandi tímabilum:

Fyrir haustmisseri: Byrjun mars - 15. júní og byrjun ágúst - 27. ágúst.
Fyrir vormisseri: 20. október - 21. janúar

Hægt er að skoða yfirlit yfir allar námsleiðir í boði við háskólann á vefnum, en athugið að það getur verið misjafnt milli missera hvort tekið er við nýjum nemendum í námsleiðir.

Umsókn um breytingu á námsleið

Nemendur í framhaldsnámi sem hafa hug á að breyta námsleið þurfa aðskila inn nýrri námsumsókn á almennum umsóknartíma framhaldsnáms í gegnum umsóknagátt. 

Breyting á kjörsviði

Ef þú vilt breyta kjörsviði innan námsleiðar eða skrá aukagrein sendir þú beiðni á Nemendaskrá.

Ráðgjöf við námsval

Hjá Nemendaráðgjöf (NHÍ) starfa náms- og starfsráðgjafar sem veita meðal annars upplýsingar um nám og ráðgjöf um námsval. Ef þig vantar aðstoð með námsval þá getur þú bókað viðtal við ráðgjafa á vefnum. Við mælum einnig með að skoða námsvalshjólið.

Hvað þarf ég að hafa í huga þegar ég sæki um breytingu á námsleið?

Áður en þú sækir um breytingu á námsleið þarftu að ganga úr skugga um að þú uppfyllir inntökuskilyrði og forkröfur þeirrar námsleiðar sem þú ætlar að sækja um.

Grunnnám

Þegar umsókn um breytingu á námsleið hefur verið samþykkt lokast fyrri námsferillinn og nýr námsferill verður stofnaður í Uglu. Umsókn er almennt ekki afgreidd fyrr en öll námskeið á fyrri námsferli hafa annaðhvort fengið lokaeinkunn í Uglu eða þú hefur skráð þig úr þeim.

Framhaldsnám

Nemandi í framhaldsnámi sem sótt hefur um í nýtt framhaldsnám þarf að óska sérstaklega eftir því að fyrri ferli sé lokað ætli hann sér ekki að ljúka því námi.

Ef þú ert óviss um stöðu námsferilsins eða hvaða áhrif breytingin hefur á námið þitt skaltu hafa samband við Nemendaskrá áður en breytingin er afgreidd.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg