Greinar um þetta efni

Skrásetningargjald

Til að staðfesta skráningu við Háskóla Íslands þurfa nemendur að greiða árlegt skrásetningargjald, kr. 75.000. Athugið að skrásetningargjaldið er ekki endurkræft.

Eindagi skrásetningargjaldsins er 4. júlí. Ef gjald er ógreitt eftir eindaga er álitið að nemandi/umsækjandi hafi hætt við að stunda nám við háskólann.

Nemendur sem greiða í stéttafélög geta kannað rétt sinn til námsstyrks hjá sínu stéttarfélagi.

Gjaldskrá HÍ er að finna í Uglu.

Hvernig greiði ég skrásetningargjald?

  • Við nýskráningu (innritun í Háskóla Íslands) þurfa umsækjendur að ganga frá greiðslu skrásetningargjaldsins inni í samskiptagátt HÍ undir flipanum „Yfirlit umsókna“. 
  • Við árlega skráningu til áframhaldandi náms næsta háskólaár (í boði í Uglu í mars/apríl) þurfa nemendur að greiða skrásetningargjaldið í gegnum Uglu fyrir eindaga.

Í báðum tilvikum er hægt að greiða gjaldið með greiðslukorti í einu lagi eða með kortaláni (háð reglum kortafyrirtækis).

Staðfesting á greiðslu

Við greiðslu inni í Uglu/samskiptagátt fá nemendur sjálfkrafa senda staðfestingu á skólavist sem nýtist meðal annars til að sækja um styrk hjá stéttarfélagi. Staðfestingin er send á hi-netfang nemenda, eða á það netfang sem gefið er upp í umsókn þegar greitt er í samskiptagátt.

Lækkað gjald vegna örorku

Nemendur á örorku eða endurhæfingarlífeyri geta fengið að greiða lækkað gjald. Framvísa þarf örorkuskírteini eða bréfi frá Tryggingastofnun til þess. Hægt er að senda rafrænt skjal á nemskra@hi.is eða framvísa skírteini á Þjónustuborði Háskólatorgs til að fá upphæð lækkaða í greiðslugátt. Athugaðu að það þarf að óska eftir að greiða lækkað gjald vegna örorku fyrir hvert háskólaár.

Algengar spurningar um skrásetningargjald

Hvað ef ég fæ ekki upp möguleikann að greiða gjaldið?
  • Ef þú ert með umsókn um nám þá þarf að greiða skrásetningargjaldið undir flipanum „yfirlit umsókna“ inni í Samskiptagáttinni. Greiðslumöguleikinn britist þegar umsókn hefur verið samþykkt. 
  • Nemendur sem eru að halda áfram í námi þurfa fyrst að ljúka við árlega skráningu í Uglu, að því loknu kemur upp möguleiki til að greiða skrásetningargjaldið inni í Uglu. Eftir eindaga dettur það út aftur.
Hvað ef ég gleymdi að skrá mig í árlegri skráningu?
Sendu póst á Nemendaskrá (nemskra@hi.is) til að staðfesta að þú ætlir að halda áfram námi næstkomandi skólaár.
Hvað ef ég gleymdi að greiða fyrir eindaga?

Nemendum gefst kostur á að skrá sig utan auglýstra skráningartímabila og greiða gjaldið með 10.000 kr. álagi. Frestur til að staðfesta skrásetningu sína með þeim hætti rennur út í byrjun ágúst.

Hvað ef ég tek leyfi frá námi, greiði ég samt skrásetningargjald?

Að gefnu samþykki frá deild getur nemandi sem ætlar að taka sér námsleyfi í eitt háskólaár greitt 10.000 kr. leyfisgjald á Þjónustuborðinu Háskólatorgi. Frekari upplýsingar um námsleyfi og leyfisgjald er að finna í Kennsluskrá.

Frekari upplýsingar og aðstoð

Þjónustuborð HÍ 
Háskólatorgi
mán. - fim. 8:30 - 16:00
fös. 8:30-15:00
525-4000

Var þessi grein gagnleg?
1 af 1 fannst þessi grein gagnleg