Einstökum deildum er heimilt að meta námskeið eða námshluta sem þú hefur lokið við aðra deild eða annan skóla. Þú sækir um mat á fyrra námi til þinnar deildar sem ákveður hvort meta skuli viðkomandi námskeið og þá til hve margra ECTS-eininga.
Fylgigögn
Með umsókn um mat á fyrra námi þarf að fylgja staðfest afrit af námsferilsyfirliti ásamt námslýsingum frá viðkomandi skóla. Ef námið sem þú ert að fá metið er frá HÍ þarf hvorki að skila yfirliti né lýsingum, nema í undantekningartilfellum.
Umsókn um mat á námi
Hjá öllum deildum þarf að gera grein fyrir hvort sótt er um að fyrra nám umsækjanda sé metið sem valnámskeið eða hvort óskað sé eftir að það komi í stað ákveðins tilgreinds skyldunámskeiðs.
Frekari leiðbeiningar koma frá viðkomandi deild.
Deildin aflar umsagnar kennara í viðkomandi grein áður en ákvörðun er tekin.
Reglur deilda um mat á námi geta verið mismunandi og geta kveðið á um:
- Lágmarksárangur í þeim námskeiðum sem metin eru.
- Hámarksaldur prófa sem metin eru.
Auk þess eiga reglur deildanna að segja til um um hvort leyfilegt er að meta námskeið sem áður hafa verið látin gilda til prófgráðu.
Hvernig veit ég hvort búið er að samþykkja matið?
Deildin tilkynnir þegar niðurstaða liggur fyrir. Sé matið samþykkt verður það fært inn í þína Uglu.