Greinar um þetta efni

Stundatöflur

Nemendur geta skoðað stundatöfluna sína á innri vefnum Uglu, undir Uglan mín → Stundataflan mín. Þessa stundatöflu má líka nálgast í SmáUglunni.

  • Stundatöflum námskeiða getur þú flett upp með því að nota námskeiðaleit í kennsluskrá.
  • Það getur verið mismunandi eftir deildum og námskeiðum hvenær stundatafla er birt. Á meðan getur þú fundið drög að stundatöflum á heimasíðu háskólans og á heimasíðum deilda.

Staðsetning kennslustofa er táknuð á stundatöflu með skammstöfun byggingar og númeri þeirrar stofu þar sem námskeið er kennt. Staðsetningar og yfirlitsmyndir bygginga háskólans er að finna hér.

Skammstafanir í stundatöflum

Á stundaskrám eru ýmsar skammstafanir. Er þar helst að nefna:

  •  f = fyrirlestur
  • d = dæmatími
  •  s = stoðtími
  •  v = verklegt

Einnig eru skammstöfuð heiti bygginga. Í drögum að stundatöflum eru skammstöfuð nöfn kennara.

Hópaskipting og dæmatímar

Stundatafla í Uglu sýnir viku fyrir viku allar kennslustundir þeirra námskeiða sem nemandi er skráður í. Þar með talið eru allir dæmatímar og verklegir tímar í fjölmennum námskeiðum þar sem nemendum er skipt í hópa. Hópar eru númeraðir á stundatöflu (d1, d2, v1, v2, h1, h2 o.s.frv.). Þetta veldur því að stundatöflur virðast þéttari en þær eru í raun fyrir hvern nemanda.

Þegar þú veist í hvaða hóp þú ert geturðu smellt á þá tíma/hópa sem þú tilheyrir ekki og valið að fela þá á stundatöflu.

Hópaskipting er yfirleitt tilkynnt á kennsluvef námskeiðs í fyrstu kennsluviku.

Get ég breytt stundatöflunni minni?

Ef um árekstra er að ræða milli námskeiða er ekki hægt að laga það nema með því að breyta námskeiðavali. Athugaðu þó fyrst eftirfarandi:

  • Í sumum námskeiðum eru hópaskiptir tímar þar sem möguleiki er að skipta um hóp.
  • Það er almennt ekki mætingaskylda í tíma við háskólann. Það getur verið gott að ræða við kennara og kynna sér vel kröfur námskeiðsins til að meta hvort hægt sé að sitja námskeið þrátt fyrir árekstra í stundatöflu áður en þú tekur ákvörðun.
  • Ef þú breytir námskeiðaskráningu þá er mikilvægt að hafa í huga að stundatafla í Uglu uppfærist ekki um leið og námskeiðaskráning. Það getur tekið nokkrar klukkustundir fyrir breytingarnar að koma fram.
Getur stundataflan breyst eftir að hún hefur verið birt?
Já, stundatöflur geta tekið einhverjum breytingum allt þar til kennsla hefst. Eftir að kennsla er hafin gæti verið breyting á kennslustofu. Tímasetningu er venjulega ekki breytt eftir að kennsla hefst nema í samráði við nemendur.
Af hverju sé ég engin námskeið í stundatöflunni minni?
Ef þú sérð engin námskeið í stundatöflu skaltu athuga eftirfarandi:
  • Athugaðu hvort þú ert að skoða rétta viku. Stundataflan í Uglu sýnir eina viku í senn.
  • Athugaðu námskeiðaskráninguna þína. Ef skráning er nýlega vistuð geta liðið nokkrar klukkustundir áður en breytingar að birtast í stundatöflu.
  • Ef það hefur ekki verið birt stundatafla í Uglu geturðu farið á heimasíðu HÍ og skoðað drög að stundatöflum deilda og fræðasviða.
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg