Greinar um þetta efni

Senda póst síðar í Outlook

Hægt er að skrifa póst og láta Outlook um að senda hann á fyrirfram ákveðnum tíma í framtíðinni. Til dæmis næsta morgun. Hér eru leiðbeiningar hvernig þetta er gert.

ATH. að mikilvægt er að tölvan og Outlook sé í gangi á þeim tíma sem pósturinn á að sendast.

  1. Byrjið á því að búa til nýjan tölvupóst með því að smella á „Ný skeyti“ (New Email):
  2. Smellið nú á flipann „Valkostir“ (Options) og smellið svo á „Seinka sendingu“ (Delay Delivery):seinkar 1.png
  3. Hakið í „Ekki afhenda fyrir“ (Do not deliver before) og setjið inn hvenær pósturinn á að vera sendur. Smellið svo á „Loka“ (Close):seinkar 2.png
  4. Nú er „Seinka sendingu“ (Delay Delivery) merktur sem sýnir að þar er virkni. Þegar pósturinn er tilbúinn þá er smellt á „Senda“ (Send) og þá verður pósturinn sendur á þeim tíma sem var gefin upp í skrefinu á undan.

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
mán-fim 08:30-16:00
fös 08:30-15:00
hjalp@hi.is
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg