Outlook býður upp á að geyma textablokkir sem auðvelt er að nota síðar. Eins og ef um er að ræða svar við spurningu sem oft er verið að spyrja um. Þá er hægt að útbúa flott svar, geyma það og nota það svo síðar þegar sama spurning er borin upp. Þá þarft þú ekki alltaf að vera skrifa sama svarið upp á nýtt. Hér að neðan er sýnt hvernig þú getur útbúið svona textablokk og hvernig þú notar hana síðar.
- Búið til nýjan tölvupóst með því að smella á „Ný skeyti“ (New Email):
- Skrifið texta og veljið hann svo.
- Smellið á „Setja inn“ (Insert) flipann og svo á „Flýtihlutir“ (Quick Parts). Þar undir er texti sem búið er að vista áður. Til að bæta við texta er smellt á „Vista val í flýtihlutagalleríi...“ (Save selection to Quick Part Gallery...):
- Veljið nafn fyrir textablokkina.
- Hægt er að raða blokkirnar í flokka.
- Hægt er að skrifa lýsingu sem birtist þegar bendilinn er settur yfir textablokkina.
- Smellið svo á „Í lagi“ (OK).
- Nú er hægt að velja textablokkina næst þegar sendur er póstur, fundarboð eða viðburður:
- Til að auðvelda enn frekar aðgengi að „Flýtihlutir“ (Quick Parts) smellið þá á „Setja inn“ (Insert) flipann, hægri smellið á „Flýtihlutir“ (Quick Parts) og veljið „Bæta við flýtistiku“ (Add to Quick Access Toolbar):
- Næst þegar skrifa á póst, viðburð eða fundarbókun þá er smellt á litla táknið fyrir „Flýtihlutir“ (Quick Parts) og valið textablokkina.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Tölvuþjónustan Háskólatorgi
mán-fim 08:30-16:00
fös 08:30-15:00
hjalp@hi.is
525-4222