Azure er síða þar sem nemendur geta sótt sér forrit frítt eða með afslætti.
-
Opnið Azure í vafra smellið á "Start free".
- Skráðu þig inn með HÍ netfanginu þínu og lykilorðinu (sama og í Uglu).
- Veldu Iceland í Country code og sláðu inn símanúmerið þitt í Phone number, veldu "Text me" eða "Call me" eftir hvað hentar þér betur.
Sláðu inn Verification code sem þú fékkst í skilaboðum eða símtali. - Fylltu út alla reitina og hakaðu í "I agree to the subscription agreement, offer details and privacy statement" og smelltu á "Sign up" til að halda áfram.
- Smelltu á "Software"
- Hér færðu lista af forritum sem þú getur sótt, veldu það sem þú vilt. En í þessu tilfelli veljum við Project Professional 2019.
- Athugaðu að listinn getur verið breytilegur og ekki endilega sami hugbúnaður í boði núna og þegar skjáskotin voru tekin.
- Smelltu á "View Key" til að fá upp leyfislykilinn sem þú þarft að nota í uppsetningunni. Afritaðu lykilinn til að nota síðar og smelltu á "Download".
- Niðurhalið getur tekið smá tíma en þegar því er lokið geturðu opnað það og haldið áfram.
- Tvísmelltu á "Opna" (Open).
- Tvísmelltu á "Setup" og byrjaðu uppsetninguna.
- Ef þú færð upp þennan glugga veldu "Install 64-bit".
- Ef þú færð upp þennan glugga, vistaðu það sem þörf er á að vista og smelltu á "Continue"
- Hinkraðu þar til uppsetningu er lokið og smelltu á "Close" þegar þessi gluggi kemur
- Settu inn leyfislykilinn sem þú afritaðir í skrefi 6 og smelltu á "Activate Office"
- Smelltu á "Accept and start"
Frekari upplýsingar og aðstoð
Tölvuþjónustan Háskólatorgi
mán-fim 08:30-16:00
fös 08:30-15:00
hjalp@hi.is
525-4222