Greinar um þetta efni

Staðfesting á námi

Nemendur geta sótt ýmis vottorð í Uglu sér að kostnaðarlausu undir Uglan mín -> Vottorð og námsferilsyfirlit.

Í sumum tækjum gæti þurft að skipta um vafra til að geta opnað skjöl í sjálfsafgreiðslu í Uglu.

Ekki er hægt að sækja vottorð í gegnum Smáugluappið.

Fyrrverandi nemendur hafa ekki lengur aðgang að Uglu og þurfa að hafa samband við Þjónustuborðið á Háskólatorgi.

Námsferilsyfirlit með brautskráningu aftur til 2015 er aðgengilegt á bæði íslensku og ensku á Mínum síðum á island.is. Yfirlitið sýnir öll lokin námskeið og einkunnir á brautskráðum ferli.

Önnur sérsniðin vottorð og námsferilsyfirlit ásamt námskeiðalýsingum eru gefin út af Þjónustuborðinu á Háskólatorgi. 

Rafrænt innsigluð skjöl sem ekki eru fáanleg í sjálfsafgreiðslu er hægt að panta í vefformi. Vottorð á pappír er hægt að fá á Þjónustuborðinu gegn framvísun skilríkja. 

Afgreiðslutími er almennt 1–3 virkir dagar, en getur lengst á álagstímum, til dæmis í upphafi misseris. Mikilvægt er að beiðnin sé skýr og tilgreini nákvæmlega hvaða skjali er óskað eftir. 

Hvert skjal sem er útbúið af Þjónustuborðinu kostar 350 kr., fyrir utan námskeiðalýsingar sem kosta 450 kr.

Hægt er að fá skjöl á íslensku eða ensku:

  • sem rafrænt innsiglað PDF skjal
  • stimplað og undirritað skjal á pappír

 Sjá einnig Staðfesting á brautskráningu.

Frekari upplýsingar og aðstoð

Þjónustuborð HÍ
Háskólatorgi
Mán–fös: 8:30 - 15:00
Senda fyrirspurn
525-4000

Var þessi grein gagnleg?
0 af 1 fannst þessi grein gagnleg