Greinar um þetta efni

Bæta við auðkenningaraðferðum

Við hvetjum alla til að setja upp minnst tvær leiðir til að auðkenna sig. Ástæðan er ef að ein leið virkar ekki (sími týnist, skipt er um síma o.s.frv.) að þá er hægt að velja aðra leið til að auðkenna sig.

Hér er sýnt hvernig þú setur inn aðra auðkenningarleið.

  1. Byrjar á því að fara inn á mfa.hi.is. Þú þarft að auðkenna þig til að skrá þig þar inn.
  2. Smelltu á „Öryggisupplýsingar“ (Security info) og þar velur þú „Bæta aðferð við“ (Add method):MFA bæta við 1.png
  3. Hér velur þú þá aðferð sem þú vilt bæta við. ATH að hægt er að vera með fleiri en eitt sannvottunarforrit sem aðferð. Engin takmörk eru fyrir því hvað þið setjið upp margar aðferðir:velja_adferd.png

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fim 08:30-16:00
Fös: 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg