Hér að neðan er sýnt skref fyrir skref hvernig tveggja þátta auðkenning er sett upp með appi og með Aðgangslykil (Passkey). Hægt er að bæta við auðkenningaaðferð seinna.
Ef þú skiptir um síma þá þarf að flytja eða endursetja auðkenninguna áður en það er hægt að setja auðkenninguna aftur upp.
Stuðningur við SMS auðkenningu lýkur
Hætt verður að styðja við SMS og símhringingar frá 1. febrúar 2027 vegna öryggisgalla.
Uppsetning með Microsoft Authenticator
Hér er sýnt hvernig tveggja þátta auðkenning með appi er sett upp (Microsoft Authenticator).
- Opnið vefsíðuna mfa.hi.is. ATHUGIÐ að það er best að gera þetta í öðru tæki en símanum sem verður notaður fyrir tveggja þátta auðkenninguna.
- Sláið inn netfang og smellið á „Áfram“ (Next):
- Sláið inn aðgangsorð (lykilorð) og smellið á „Innskráning“ (Next):
- Veljið „Já“ (Yes) ef þetta er einka tölva. Ef þetta er ekki einka tölva eða ef fleiri hafa aðgang að henni veljið þá „Nei“ (No):
- Smellið hér á „Áfram“ (Next):
- Náið í Microsoft Authenticator á símann í gegnum App Store (iPhone & iPad) eða Google Play (Android). Ekki er hægt að nota önnur sannvottunarforrit lengur, þar sem Microsoft hefur lokað á það:
- Opnið Microsoft Authenticator á símanum:
Þegar Microsoft Authenticator er opnaður í fyrsta sinn þá þarf að smella á „I agree“. Athugið að leyfa tilkynningar frá appinu ef það er beðið um það: - Smellið núna á „Áfram“ (Next):
- Opnið Microsoft Authenticator í símanum. Veljið "Scan a QR code" ef það sést ekki veljið þá + (plús) hnappin efst í hægra horni, smellið á "Work or School account" og svo á "Scan a QR code"
Síminn gæti beðið um aðgang að myndavélinni. Gefið leyfi fyrir því. - Smellið á "Áfram" (Next):
- Berðu símann/myndavélina upp að QR kóðanum sem birtist á skjánum. Smellið svo á „Áfram“ (Next) í vafranum.
- Í símanum kemur upp tilkynning um að samþykkja innskráninguna. Sláið inn töluna sem birtist á skjánum og smellið svo á "YES":
- Tilkynning samþykkt. Smelltu á „Áfram“ í vafranum:
Nú er allt klárt. Skrefin hér að ofan ættir þú ekki að þurfa endurtaka fyrr en þú skiptir um síma.
Nota þarf tveggja þátta auðkenningu utan HÍ nets til að staðfesta innskráningu.
Einnig er hægt að staðfesta innskráninguna með sex stafa tölunni í appinu með því að smella á "Ég get ekki notað Microsoft Authenticator sem stendur" (I can't use my Microsoft Authenticator right now) og síðan "[123] Notaðu staðfestingakóða" (Use a verification code):
Uppsetning á Passkey í Microsoft Authenticator
Áður en passkey er sett upp í Microsoft Authenticator þá þarf fyrst að setja forritið upp með leiðbeiningunum hér að ofan.
- Opnið Microsoft Authenticator á símanum.
- Smellið á háskólanetfangið undir "Menntaský":
- Smellið á "Create a passkey" undir "Other ways to sign in":
- Skráið ykkur inn á háskóla netfangið og fylgið því sem kemur upp.
Ef þú villt nota Passkey til að skrá þig inn þá velur þú "iPhone, iPad or Android device" (viðmótið er mismunandi eftir stýrikerfi). Opnar myndavélina á símanum og skannar QR kóðan:
Uppsetning á Aðgangslykil (Passkey)
- Farðu inn á "mfa.hi.is":
- Sláðu inn netfang og smelltu á „Áfram“:
- Sláðu inn aðgangsorð (lykilorð) og smelltu á „Áfram“:
- Ef þú ert að nota þína eigin tölvu þá er gott að merkja hér við „Já“. Ef þú hins vegar ert á tölvu sem fleiri hafa aðgang að þá er betra að merkja við „Nei“ hér:
- Samþykkið innskráninguna með Authenticator:
-
Smelltu á "+ Bæta við innskráningaraðferð" (Add sign-in method)
- Veljið "Aðgangslykill" (Passkey)
- Hér þarf að fylgja þeim leiðbeiningum sem stýrikerfið/vafrin/lyklakippan (password manager) gefur upp á skjáinn ykkar.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fim 08:30-16:00
Fös: 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222