Greinar um þetta efni

Uppsetning á tveggja þátta auðkenningu

Hér að neðan er sýnt skref fyrir skref hvernig tveggja þátta auðkenning er sett upp með appi eða með textaskilaboðum. Hægt er að bæta við auðkenningaaðferð seinna.

Ef þú skiptir um síma þá þarf að flytja eða endursetja auðkenninguna áður en það er hægt að setja auðkenninguna aftur upp.

Stuðningur við SMS lýkur

Hætt verður að styðja við SMS og símhringingar frá 1. febrúar 2027

Uppsetning með appi

Hér er sýnt hvernig tveggja þátta auðkenning með appi er sett upp (Microsoft Authenticator).

  1. Farðu inn á mfa.hi.is. ATHUGIÐ að það er best að gera þetta í öðru tæki en símanum sem þú notar fyrir tvíþátta auðkenninguna.MFA appið 1.png
  2. Sláðu inn netfang og smelltu á „Áfram“:MFA appið 2.png
  3. Sláðu inn aðgangsorð og smelltu á „Áfram“:MFA appið 3.png
  4. Ef þú ert að nota þína eigin tölvu þá er gott að merkja hér við „Já“. Ef þú hins vegar ert á tölvu sem fleiri hafa aðgang að þá er betra að merkja við „Nei“ hér:MFA appið 4.png
  5. Smelltu hér á „Áfram“:MFA appið 5.png
  6. Þegar þessi mynd hér að neðan kemur á skjáinn þarf að opna símann og sækja Microsoft Authenticator í gegnum App Store (iPhone & iPad) eða Google Play (Android). Ekki er hægt að nota önnur sannvottunarforrit lengur, þar sem Microsoft hefur lokað á það:MFA appið 6.png
  7. Opnið Microsoft Authenticator í símanum hjá ykkur:
    Í símanum þegar þú opnar Microsoft Authenticator í fyrsta skipti smellir þú á „I agree“. ATH að leyfa tilkynningar frá appinu ef þú ert beðin(n) um að leyfa slíkt:MFA appið 7.png
  8. Smellið núna á „Áfram“:MFA appið 8.png
  9. Smellið aftur á „Áfram“ í næsta glugga
  10. Í næsta glugga kemur upp QR kóði og þá er komið að því að opna Authenticator Appið í símanum.MFA appið 9.png
  11. Í símanum skaltu velja "Add account" og svo „Scan a QR code“. Veldu „Vinna eða skóli“ (Work or school) ef þú ert beðin(n) um slíkt:MFA appið 10.png
  12. Síminn gæti nú beðið um aðgang að myndavélinni. Gefðu leyfi fyrir því og berðu símann upp að QR kóðanum sem er á skjánum. Smelltu því næst á „Áfram“ í vafranum.
  13. Í símanum færðu upp glugga þar sem þú ert beðin(n) um að samþykkja innskráninguna. Sláðu inn töluna sem birtist á skjánum og smelltu svo á "YES":MFA appið 11.png
  14. Tilkynning samþykkt. Smelltu á „Áfram“ í vafranum:MFA appið 12.png

Nú ætti allt að vera klárt til að nota tvíþátta auðkenningu. Skrefin hér að ofan ættir þú ekki að þurfa endurtaka fyrr en þú skiptir um síma.

Nú í hvert skipti sem þú skráir þig inn á síður eða kerfi HÍ og ert utan HÍ netsins, þá ertu beðin um að samþykkja innskráninguna í símanum.

Einnig er hægt að staðfesta innskráninguna með sex stafa tölunni í appinu með því að smella á "Ég get ekki notað [Sjálfvalin auðkenning] sem stendur" (I can't use my [Sjálfvalinn auðkenning] right now) og síðan "[123] Notaðu staðfestingakóða" (Use a verification code):MFA appið 13.png

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fim 08:30-16:00
Fös: 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg