Greinar um þetta efni

Uppsetning á tveggja þátta auðkenningu

Hér að neðan er sýnt skref fyrir skref hvernig tveggja þátta auðkenning er sett upp með appi eða með textaskilaboðum. Hægt er að bæta við auðkenningaaðferð seinna.

Ef þú skiptir um síma/símanúmer þá þarf að flytja eða endursetja auðkenninguna áður en það er hægt að setja auðkenninguna aftur upp.

Uppsetning með appi

Hér er sýnt hvernig tveggja þátta auðkenning með appi er sett upp (Microsoft Authenticator).

  1. Farðu inn á mfa.hi.is. ATHUGIÐ að það er best að gera þetta í öðru tæki en símanum sem þú notar fyrir tvíþátta auðkenninguna.MFA appið 1.png
  2. Sláðu inn netfang og smelltu á „Áfram“:MFA appið 2.png

  3. Sláðu inn aðgangsorð og smelltu á „Áfram“:MFA appið 3.png
  4. Ef þú ert að nota þína eigin tölvu þá er gott að merkja hér við „Já“. Ef þú hins vegar ert á tölvu sem fleiri hafa aðgang að þá er betra að merkja við „Nei“ hér:MFA appið 4.png

  5. Smelltu hér á „Áfram“:MFA appið 5.png

  6. Þegar þessi mynd hér að neðan kemur á skjáinn þarf að opna símann og sækja Microsoft Authenticator í gegnum App Store (iPhone & iPad) eða Google Play (Android). Ekki er hægt að nota önnur sannvottunarforrit lengur, þar sem Microsoft hefur lokað á það:MFA appið 6.png

  7. Opnið Microsoft Authenticator í símanum hjá ykkur:
    Í símanum þegar þú opnar Microsoft Authenticator í fyrsta skipti smellir þú á „I agree“. ATH að leyfa tilkynningar frá appinu ef þú ert beðin(n) um að leyfa slíkt:MFA appið 7.png

  8. Smellið núna á „Áfram“:MFA appið 8.png

  9. Smellið aftur á „Áfram“ í næsta glugga

  10. Í næsta glugga kemur upp QR kóði og þá er komið að því að opna Authenticator Appið í símanum.MFA appið 9.png

  11. Í símanum skaltu velja "Add account" og svo „Scan a QR code“. Veldu „Vinna eða skóli“ (Work or school) ef þú ert beðin(n) um slíkt:MFA appið 10.png

  12. Síminn gæti nú beðið um aðgang að myndavélinni. Gefðu leyfi fyrir því og berðu símann upp að QR kóðanum sem er á skjánum. Smelltu því næst á „Áfram“ í vafranum.

  13. Í símanum færðu upp glugga þar sem þú ert beðin(n) um að samþykkja innskráninguna. Sláðu inn töluna sem birtist á skjánum og smelltu svo á "YES":MFA appið 11.png

  14. Tilkynning samþykkt. Smelltu á „Áfram“ í vafranum:MFA appið 12.png

Nú ætti allt að vera klárt til að nota tvíþátta auðkenningu. Skrefin hér að ofan ættir þú ekki að þurfa endurtaka fyrr en þú skiptir um síma.

Nú í hvert skipti sem þú skráir þig inn á síður eða kerfi HÍ og ert utan HÍ netsins, þá ertu beðin um að samþykkja innskráninguna í símanum.

Einnig er hægt að staðfesta innskráninguna með sex stafa tölunni í appinu með því að smella á "Ég get ekki notað [Sjálfvalin auðkenning] sem stendur" (I can't use my [Sjálfvalinn auðkenning] right now) og síðan "[123] Notaðu staðfestingakóða" (Use a verification code):MFA appið 13.png

Uppsetning með textaskilaboðum

Hér er sýnt hvernig tveggja þátta auðkenning með textaskilaboðum (SMS) er sett upp. Við mælum þó frekar með auðkenningu í gegnum Authenticator appið.

  1. Farðu inn á mfa.hi.is. ATHUGIÐ að það er best að gera þetta í öðru tæki en símanum sem þú notar fyrir tvíþátta auðkenninguna:MFA appið 1.png
  2. Sláðu inn netfang og smelltu á „Áfram“:MFA appið 2.png
  3. Sláðu inn aðgangsorð og smelltu á „Áfram“:MFA appið 3.png
  4. Ef þú ert að nota þína eigin tölvu þá er gott að merkja hér við „Já“. Ef þú hins vegar ert á tölvu sem fleiri hafa aðgang að að þá er betra að merkja við „Nei“ hér:MFA appið 4.png
  5. Smelltu hér á „Áfram“:MFA appið 5.png
  6. Smelltu hér á „Ég vil setja upp aðra aðferð“:MFA sms 6.png
  7. Veljið „Sími“ í fellilistanum:MFA sms 7.png
  8. Hér velur þú fyrst land og svo setur þú inn símanúmerið þitt, merkir við „Sendið mér kóða“ í textaskilaboði og smellir á „Áfram“:MFA sms 8.png
  9. Kóðinn kemur í símann sem textaskilaboð (SMS).
  10. Sláðu inn kóðann sem þú fékkst sem textaskilaboð (SMS) og smelltu á „Áfram“:MFA sms 9.png
  11. Nú ætti þessi skjár að birtast hjá þér þar sem segir að textaskilaboðin hafi verið sannprófuð. Smelltu á „Áfram“:
  12. Nú ætti allt að vera klárt fyrir tveggja þátta auðkenningu með textaskilaboðum (SMS). Smelltu á „Lokið“:

Nú í hvert skipti sem þú skráir þig inn á síður eða kerfi HÍ og ert utan HÍ netsins, þá ertu beðin um að samþykkja innskráninguna með kóða sem þú færð sem textaskilaboð í símann.

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
mán-fim 08:30-16:00
fös 08:30-15:00
hjalp@hi.is
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg