Inspera er rafrænt prófakerfi Háskóla Íslands. Inspera gerir okkur kleift að koma með okkar eigin fartölvur í prófstofu og þreyta prófin gegnum þær.
Inspera próf eru ýmist „læst“ eða „opin“. Kennari ræður því hvor leiðin hentar best í samræmi við matsáætlun og hæfniviðmið námskeiðs hans.
Að próf séu læst þýðir einfaldlega að afmörkuð eða engin hjálpargögn séu leyfileg við próftökuna. Slík próf eru stundum kölluð „gagnalaus próf“ (e. closed-book). Nemandi þarf því að treysta alfarið á minni sitt, þekkingu og skilning.
Þegar ákveða þarf hvort próf sé opið eða læst er, í stuttu máli, verið að ákveða hvort:
öll hjálpargögn verði leyfileg meðan á próftöku stendur - „gagnapróf“ (e. Open-book)
aðeins afmörkuð hjálpargögn sem kennari velur (PDF-skjöl, vefsíða eða vefsvæði) verði leyfileg - „læst (með hjálpargögnum)“ (e. Closed-book)
engin hjálpargögn verði leyfileg - „gagnalaus próf“ (e. Closed-book)
Að próf séu opin þýðir að öll hjálpargögn séu leyfileg og geta nemendur þá notað tölvuna sína eins og venjulega meðan á prófinu stendur. Það þýðir að nemendur geta skoðað og nýtt t.d.:
- Vef- og tölvuforrit,
- vefsíður og vefsvæði,
- hvers kyns skjöl vistuð á tölvu, í skýjageymslu og á jaðartækjum.
- Nemandi opnar vafra á tölvunni sinni og slær inn https://hi.inspera.comog skráir sig inn.
- Prófið ætti þá að birtast á stjórnborði Inspera undir flipanum „Próf framundan“.
-
Nemandi finnur rétt próf í prófalistanum og smellir á „Tilbúið/n/nn? Smelltu hér->"
- Í hefðbundnum opnum Inspera prófum þarf nemandi engin lykilorð til að opna slík próf.
- Undantekning á því er þegar haldin eru opin staðpróf en þá eru jafnan notuð svokölluð dagslykilorð sem prófverðir/kennarar gefa nemendum upp þegar allir eru tilbúnir.
- Þá er bara að hinkra eftir því að prófið opni en þangað til er „Hefja próftöku" hnappurinn grár.
- Í hefðbundnum opnum Inspera prófum þarf nemandi engin lykilorð til að opna slík próf.
- Þegar liðið er að opnunartíma prófsins smellir nemandi á „Hefja próftöku->"
- Á síðustu síðu prófsins merkt √ smellir nemandi svo á „Skila prófúrlausn og fara aftur á Stjórnborðið"
Opin Inspera gagnapróf er hægt að taka á nær öll veftengd tæki ef þau keyra stýrikerfin MacOs, Windows, iOS, Chrome OS eða Linux (Ubuntu).
Í gagnalausum Inspera prófum mæta nemendur á prófstað alla jafna með eigin tölvur. Fyrir gagnalaus próf er annaðhvort notast við hugbúnaðinn Safe Exam Browser eða Inspera-prófgáttina en sá síðarnefndi mun taka alfarið við þegar fram líða stundir.
- Í prófstofu opnar nemandi vafra á tölvu sinni, slær inn https://hi.inspera.com og skráir sig inn.
- Prófið ætti þá að birtast á stjórnborði Inspera undir flipanum „Próf framundan“.
- Nemandi smellir á rétt próf, skrollar niður og smellir á „Opna próf í Save Exam Browser“.
- Við þá aðgerð ræsir Inspera sérstakan prófvafra, Safe Exam Browser (SEB), sem lokar aðgangi að:
- Vefsvæðum og -síðum,
- hvers kyns forritum á vef eða tölvu,
- skjölum tölvunnar.
- Þá kemst nemandi ekki lengra í bili og þarf að hinkra eftir því að prófið opni og að allt sé tilbúið í prófstofunni fyrir próftökuna.
- Við þá aðgerð ræsir Inspera sérstakan prófvafra, Safe Exam Browser (SEB), sem lokar aðgangi að:
- Prófvörður/kennari afhendir nemanda lykilorð (SEB-lykilorð) sem er nauðsynlegt til að komast inn í prófið sjálft.
- Þegar liðið er að opnunartíma prófsins smellir nemandi á „Hefja próftöku->"
- Þegar nemandi hefur lokið við prófúrlausn sína skal hann kalla á prófvörð/kennara og gera eftirfarandi:
- Á síðustu síðu prófsins merkt √smellir nemandi svo á „Skila prófúrlausn"
- Nemandi skal svo loka Safe Exam Browser fyrir framan prófvörð/kennara en í því ferli kann að vera óskað eftir lykilorði. Prófvörður/kennari útvegar það lykilorð.
Tölvur nemenda breytast þannig, tímabundið, í prófvélar þar sem einungis prófið sjálft og þau hjálpargögn sem kennari kann að hafa skilgreint eru aðgengileg (stafræn og lífræn).
ATH. Það verður að setja upp SEB gegnum Inspera prufupróf!
Það er afar mikilvægt að nemendur opni og fletti Inspera-prufuprófi í læstu umhverfi. Í því ferli felst að nemandi setur upp, eða uppfærir, rétta útgáfu af Safe Exam Browser á tölvu sinni. Það er gríðarlega mikilvægt að hlaða niður Safe Exam Browser aðeins í gegnum Inspera-prufuprófið.
Það er mögulegt að hlaða Safe Exam Browser-vafranum niður víða á vefnum en Inspera styður alls ekki allar útgáfur SEB og getur það líka átt við um nýjustu útgáfu frá SEB.
Með því að setja upp SEB-vafrann í gegnum Inspera-prufupróf lágmörkum við hættu á tæknilegum vandamálum í prófstofu.
En hvernig set ég upp Safe Exam Browser?
Sjá leiðbeiningar í Uglu um uppsetningu Safe Exam Browser
Nemendur sem eru skráðir í læst Inspera próf stendur til boða að fá lánstölvur.
- Sé prófið á vegum prófaskrifstofu (öll próf á próftöflu) eru lánstölvur á prófstað og nemandi þarf einungis að gefa sig fram við prófvörð sem útvegar lánstölvu.
- Sé prófið á vegum kennara/deildar skal nemandi láta viðkomandi kennara vita og hann kemur málinu í farveg.
Til hjálpargagna í læstum Inspera prófum teljast til dæmis:
- Vefsíður og/eða vefsvæði sem kennari vill að nemendur hafi aðgang að við próftökuna. Til dæmis stafræn reiknivél, þýðingarsíður, lagasöfn o.s.frv.
- PDF skjöl sem innihalda efni sem gagnast nemendum við úrvinnslu prófsins. Til dæmis töflur, formúlublöð o.s.frv.
- Forrit eins og Word, Excel, Acrobat, R, SPSS o.s.frv.
- Ef veita á aðgang að einhverjum þessara forrita fer próftakan fram í tölvuverum háskólans.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Prófaskrifstofa - 3. hæð í Setbergi.
Sími: 525-5278
Almennar fyrirspurnir um próf: profstjori@hi.is
Aðstoð vegna Inspera: inspera@hi.is
Upplýsingar um fjarpróf: fjarprof@hi.is
Umsóknir um fjarpróf: Umsókn um fjarpróf hjá Háskóla Íslands