Greinar um þetta efni

Hlaða niður og setja upp Safe Exam Browser

SEB.pngTil að taka lokað (gagnalaust) próf í Inspera þarf nemandi að setja upp Safe Exam Browser (SEB) á tækinu sem hann hyggst nota við próftökuna. Inspera notar Safe Exam Browser (SEB) til að setja tækið í prófaham. Á meðan prófinu stendur getur nemandi aðeins unnið í prófinu og notað þau hjálpargögn sem kennari kann að hafa heimilað.

Sé nemandi í vafa hvort tölva hans ráði við að keyra læst Inspera próf (nota SEB) þá eru allar upplýsingar um tæknilegar kröfur að finna hér: Kerfiskröfur (e. System requirements) vegna SEB á vef Inspera.

ATH. Í öllum tilfellum verður að setja upp SEB gegnum Inspera prufupróf!

Aðeins þannig lágmörkum við hættu á tæknilegum vandamálum við próftökuna

Uppsetning SEB á PC/Windows tölvum
  1. Byrjað skal á að opna venjulegan vafra (t.d. Safari, Firefox eða Chrome)
  2. Fara á https://hi.inspera.com
  3. Smella á „Innskráning með Uglu netfangi"
  4. Skrá sig inn með sama netfangi og lykilorði og notað er til að opna Uglu.
  5. Velja svo Prufupróf (e.Demo tests) en Þá ætti myndin hér að neðan að blasa við.

    Prufupróf.png
  6. Smella á Tilbúið/n/nn? Smelltu hér (e.Click here to get ready)
  7. þá birtist forsíða prófsins með kynningartexta og fyrir neðan textann þessi mynd:
    Inspera_Sækja SEB.jpg
  8. Smella á Sækja SEB (e. Download) hnappinn og svo á Windows hnappinn.
  9. Smella á skráarnafnið sem birtist á skjánum þegar niðurhali er lokið og fylgja svo leiðbeiningum á skjá til að klára uppsetningu Safe Exam Browser
  10. Endurtaka svo skref 1 - 6 og smella á "Opna prófið í Safe Exam Browser"
    • ATH.: Í þessu skrefi kemur alltaf„Your browser is not correct.“ Það þýðir aðeins að við eigum eftir að opna prófið í Safe Exam Browser.

 

Uppsetning SEB á Mac/Apple tölvum
  1. Byrjað skal á að opna venjulegan vafra (t.d. Safari, Firefox eða Chrome)
  2. Fara á https://hi.inspera.com
  3. Smella á „Innskráning með Uglu netfangi"
  4. Skrá sig inn með sama netfangi og lykilorði og notað er til að opna Uglu.
  5. Velja svo Prufupróf (e.Demo tests) en Þá ætti myndin hér að neðan að blasa við.
    Prufupróf.png
  6. Smella á Tilbúið/n/nn? Smelltu hér (e.Click here to get ready)
  7. þá birtist forsíða prófsins með kynningartexta og fyrir neðan textann þessi mynd:
    Inspera_Sækja SEB.jpg
  8. Smella á Sækja SEB hnappinn og svo á macOS hnappinn. 
  9. Smella á SafeExamBrowser í Downloads möppunni (ef þess þarf).
  10. Draga SEB merkið inn í Applications möppuna.

    SEB_Applications.jpg
     

  11. Endurtaka svo skref 1 - 6 og smella á „Opna prófið í Safe Exam Browser"
    • ATH.: Í þessu skrefi kemur alltaf„Your browser is not correct.“ Það þýðir aðeins að við eigum eftir að opna prófið í Safe Exam Browser.

Ef í stað „Opna próf í Safe Exam Browser" stendur „Sækja nýjustu útgáfuna af Safe Exam Browser" (e. Download latest supported version), þarf að uppfæra vafrann en það þarf að gera reglulega eins og annann hugbúnað. Leiðbeiningar um hvernig á að uppfæra SEB má finna gegnum eftirfarandi tengil: UGLA - Setja inn réttan (uppfæra) Safe Exam Browser

ATH. Í öllum tilfellum verður að setja upp SEB gegnum Inspera prufupróf!

Aðeins þannig lágmörkum við hættu á tæknilegum vandamálum við próftökuna

 

Algeng vandamál og lausnir vegna SEB má finna á eftirfarandi síðu: Lausnir við algengum vandamálum í Inspera (SEB) – Þjónustumiðja

Frekari upplýsingar og aðstoð

Prófaskrifstofa - 3. hæð í Setbergi.
Sími: 525-5278
Almennar fyrirspurnir um próf: profstjori@hi.is
Aðstoð vegna Inspera: inspera@hi.is
Upplýsingar um fjarpróf: fjarprof@hi.is
Umsóknir um fjarpróf: Umsókn um fjarpróf hjá Háskóla Íslands 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg