Greinar um þetta efni

Lausnir við algengum vandamálum í Inspera (SEB)

 

SEB táknið Ef þú lendir í vandræðum með að opna eða nota Safe Exam Browser (SEB), eru hér helstu vandamál og hvernig þú leysir þau.

Ekkert gerist þegar ég smelli á „Opna prófið í Safe Exam Browser“

Ef ekkert gerist þegar smellt er á „Opna prófið í Safe Exam Browser“ eru eftirfarandi þrjú atriði líklegustu orsakavaldarnir:

  1. Safe Exam Browser hefur ekki verið settur upp á tölvunni.
    Lausn:

  2. Útgáfan af Safe Exam Browser á tölvunni er úrelt.

    Nauðsynlegt er að nota rétta útgáfu af SEB en skipt er um útgáfu í upphafi, og oft innan, hvers skólaárs. Þess vegna er mikilvægt að taka Inspera prufupróf reglulega. Við mælum með að nemendur opni Inspera prufupróf og fletti nokkrum spurningum fyrir hvert Inspera próf. Þannig lágmörkum við hættuna á tæknilegum örðugleikum í prófstofunni.

    ATH. Það verður að setja upp SEB gegnum Inspera prufupróf!

    Það er gríðarlega mikilvægt að hlaða niður Safe Exam Browser aðeins í gegnum Inspera prufuprófið.
    Það er mögulegt að hlaða Safe Exam Browser vafranum niður víða á vefnum en Inspera styður alls ekki allar útgáfur SEB.
    Í Inspera prufuprófi er alltaf nýjasta útgáfa SEB-vafrans sem Inspera styður í boði. Með því að nota hana lágmörkum við hættu á tæknilegum vandamálum í prófstofu.

     

  3. Á skjáborðinu er beðið um að nýjasta útgáfa SEB verði sett upp.

Lausn:

  1. Eyða út eldri útgáfu af SEB af tölvunni.
    • Á PC gegnum Control Panel/Uninstall program og á Mac með því að opna Application-möppuna og henda öllu sem heitir SEB (Safe Exam Browser) í ruslið og tæma ruslið.
  2. Opna prufuprófið aftur gegnum https://hi.inspera.com, smella á „Sækja SEB“ og fylgja leiðbeiningum um uppsetningu. 
  3. Að því loknu ætti að ganga þrautalaust að opna prufuprófið og tryggja að tölvan sé tilbúin fyrir læst, gagnalaus, Inspera próf.
Prófið opnast ekki / Skjárinn verður rauður!
Mynd af einni birtingarmynd villunar rauður skjár
Dæmi um birtingamynd af SEB-villunni rauður skjár

Rauður skjár getur komið upp af ýmsum ástæðum. Myndin hér að ofan sýnir aðeins eina birtingarmynd af mörgum mögulegum.

Algengasta ástæðan er að forrit eru enn í gangi á tölvunni.

SEB nær ekki alltaf að loka öllum forritum sjálfkrafa. Oftast koma upp heiti þeirra forrita sem SEB tókst ekki að loka sem þýðir að nemandi þarf að loka þeim handvirkt á tölvu sinni og opna prófið aftur.

Dæmi um forrit sem þarf oft að loka:

  • TeamViewer
  • Avast
  • Önnur fjarstýringar- eða öryggisforrit

Svona lokarðu forritum:

  • Windows: Opnaðu Task Manager (Ctrl + Alt + Delete) og lokaðu forritunum þar
  • Mac: Opnaðu Activity Monitor og lokaðu forritunum þar

 

Ath: Það er stranglega bannað að hafa Torrent forrit/síður opnar í prófsal

 

Röng útgáfa af SEB

Þú þarft að nota rétta útgáfu af SEB sem er í boði í gegnum prufuprófið á https://hi.inspera.com.

Ef þú ert með ranga eða gamla útgáfu getur prófið ekki opnast.

Lausn:

Skipt er um útgáfu í upphafi hvers skólaárs og því þarf reglulega að uppfæra vafrann.

SEB opnast ekki eða virkar ekki (Mac)

Rauður skjár og/eða beðið um lykilorð (e. Quit password(Invigilator password) og þú ert með prufuprófið opið:

  • Lykilorðið til að loka prufuprófi Inspera er Quit (Stórt Q). Það á aðeins við um prufuprófið - ekki önnur Inspera próf.
  • Ef það kemur upp rauður skjár en aðeins er beðið um lykilorð þá nægir að slá inn lykilorðið Quit
  • Ef það kemur upp rauður skjár og á honum eru talin upp einhver forrit ásamt því að beðið er um lykilorð þá þarf að skrifa hjá sér þau forrit sem eru talin upp áður en lykilorðið Quit er sett inn. Því næst eru leiðbeiningunum í kaflanum „Prófið opnast ekki/Skjárinn verður rauður“ hér ofar á þessari síðu.
  • Ef vandamálið kemur upp eftir próf skaltu hafa samband við inspera@hi.is eða UTS

"System security feature is disabled"

Þá þarf að virkja System Integrity Protection.

SEB opnast ekki eftir uppfærslu

  • Gakktu úr skugga um að aðeins ein útgáfa af SEB sé í „Applications“ möppunni
  • Eyða öllum útgáfum og setja upp aftur í gegnum prufupróf
  • Færa SEB í „Applications“ möppuna ef það er enn í Downloads

Vandamál við að opna próf

  • Prófaðu að loka Safari alveg
  • Opna prófið í Chrome eða Firefox

Ný útgáfa af SEB - Aðgangsheimildir vantar - Á aðeins við Mac:

Þegar ný útgáfa af SEB er sett inn og próf er opnað frá Inspera geta komið upp skilaboð um að aðgangsheimildir vanti fyrir staðsetningar þjónustu (e. Location services) og/eða fullann aðgang að hörðum diski (e. Full access to hard drive). 

Lausn við ósk eftir aðgangsheimild að staðsetningarþjónustu: 
Óskað eftir aðgansheimild að staðsetningarþjónustu
Dæmi um skilaboð þar sem óskað er eftir aðgangheimildum að staðsetningarþjónustu

Ef nemandi er í prufuprófi Inspera skal hann fylgja nákvæmlega eftirfarandi leiðbeiningum:

  1. Smella á „Skip" og setja inn lykilorðið „Quit" sé óskað eftir lykilorði.
    • Þá ætti Save Exam Browser að lokast.
  2. Smella á epla táknið efst til vinstri á skjáborði tölvunnar og velja Kerfisstillingar (e. System settings).
  3. Opna „Staðsetningar þjónusta" (e. Location services) stillingarnar.

    Óskað eftir fullum aðgangsheimildum að harðdiskdrifi
    Friðhelgis og öryggisstillingar í Mac
    • Upp kemur listi yfir öll forrit sem hafa óskað eftir slíkum heimildum – þar ætti SEB að sjást núna í stafrófsröð á listanum.
  4. Smella á takkann við Safe Exam Browser.app þannig að vafrinn fái þessar heimildir.

    Listi forrita sem hafa óskað eftir aðgangsheimildum að staðsetningarþjónustu
    Listi yfir forrit sem hafa óskað eftir aðgangsheimildum fyrir staðsetningarþjónustu
Lausn við ósk eftir fullum aðgangsheimildum að harðdiskdrifi:
Screenshot 2026-11-03 at 09.16.31.png
Óskað eftir fullum aðgangsheimildum að harðdiskdrifi

Ef nemandi er í prufuprófi Inspera skal hann fylgja nákvæmlega eftirfarandi leiðbeiningum:

  1. Smella á „Quit" og setja inn lykilorðið „Quit" sé óskað eftir lykilorði.
    • Þá ætti Save Exam Browser að lokast.
  2. Smella á epla táknið efst til vinstri á skjáborði tölvunnar og velja Kerfisstillingar (e. System settings).
  3. Óskað eftir fullum aðgangsheimildum að harðdiskdrifi
    Friðhelgis og öryggisstillingar í Mac
  4. Smella á „Fullar aðgangsheimildir að harðdisksdrifi" (e. Full Disk Access).
    • Upp kemur listi yfir öll forrit sem hafa óskað eftir slíkum heimildum – þar ætti SEB að sjást núna í stafrófsröð á listanum.
  5. Smella á takkann við Safe Exam Browser.app þannig að vafrinn fái þessar heimildir.

    System Settings - Privacy - Full Disk Access.png
    Listi yfir forrit sem hafa óskað eftir fullum aðgangsheimildum að harðdisk drifi
SEB opnast ekki eða virkar ekki (Windows)

SEB opnast ekki eftir uppfærslu

Það gæti þurft að eyða gömlum skrám áður en þú setur SEB upp aftur.

  1. Opnaðu „Run“ (Upphafsvalmynd → leita að Run)
  2. Skrifaðu %appdata% og smelltu á OK
  3. Finndu og eyddu möppunni „SafeExamBrowser“
  4. Farðu svo í AppData → Local og eyddu einnig „SafeExamBrowser“ þar
  5. Settu SEB upp aftur í gegnum Inspera prufupróf

"Automatic Termination failed"

Þá þarf að loka forritinu sem nefnt er í villuboðunum.

  • Opnaðu Task Manager og lokaðu forritinu þar

"No monitor detected"

Þessi villa getur tengst skjákorti.

  1. Opnaðu Device Manager
  2. Farðu í Display adapters
  3. Veldu skjákortið
  4. Uppfærðu driver (Update driver)
  5. Veldu „Generic PnP“ ef þarf

Ef þetta virkar ekki má prófa aðra drivera.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg