Þegar nemandi hefur lokið innskráningu í Inspera opnast stjórnborðið.
- Ofarlega til vinstri sést nafn nemanda.
- Ofarlega í hægra horninu sjást tákn fyrir tilkynningar og kenniskrá notanda. Með því að smella á kenniskránna getur nemandi breytt tungumáli viðmótsins, skoðað öll skilaboð sem honum hafa verið send innan Inspera og skráð sig út.
Hvað ef stjórnborðið birtist ekki?
Lýsing á atviki: Við sjáum bara hvítann skjá þar sem hjól snýst. Útlitið er eins og að síðan nái ekki að hlaðast upp.
Mögulegar ástæður: Innan prófstofu getur verið mikið álag á netbeina þegar hópur nemanda tengist á sama tíma. Innra minni tölvu nemanda er nær fullt og ræður ekki við að hlaða síðunni upp.
Lausnir:
- Endurhlaða vafragluggann (e. refresh) með því að smella þar til gerðan hnapp á vafranum.
- Smella á "Til baka"- hnapp vafrans.
- Í einstaka tilfellum þurfum við að skrá okkur aftur inn.
- Ef ekkert gengur getum við endurræst tölvuna okkar (hreinsar innra minnið) og skráð okkur aftur inn.
Vinnusvæði stjórnborðsins er skipt í eftirfarandi þrjá flokka:
Inniheldur lista yfir þau próf sem nemandi er skráður í og eru í gangi (merkt Opið eða Framundan).
Prófunum er raðað í tímaröð þannig að prófið sem haldið er fyrst á árinu er efst og svo þau sem eru seinna á árinu.
Athugið að skoða vel nafnið á prófinu.
Inniheldur lista yfir öll þau próf sem nemandi hefur áður verið skráður í og er lokið, hvort sem þau hafi verið opnuð eða ekki.
Prófunum er raðað svona:
- Efst eru fyrsta prófið sem nemandi tók í Inspera og svo koma þau í öfugri tímaröð að því síðasta sem nemandi hefur þegar tekið.
- Í kjölfarið er listi yfir þau próf sem nemandi hefur ekki skilað, elstu prófin efst og nýjustu prófin neðst.
- ATH. Hafi kennari opnað fyrir prófsýningu í Inspera kann próf hans að vera í miðjum listanum en ekki efst.
Inniheldur prufupróf á íslensku og ensku.
- Nauðsynlegt er að opna prufupróf reglulega til þess að ganga úr skugga um að tölvan sem er notuð ráði við Inspera próf í læstu umhverfi.
- Uppfærslur eru gerðar reglulega á læsta vafranum sem gerir það að verkum að mjög mikilvægt er að nemandi opni prufupróf oftar en einu sinni á hverri önn.
- Einnig er gott að skoða þessi próf til að kynnast viðmótinu í Inspera svo ekkert komi á óvart á prófdag.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Prófaskrifstofa - 3. hæð í Setbergi.
Sími: 525-5278
Almennar fyrirspurnir um próf: profstjori@hi.is
Aðstoð vegna Inspera: inspera@hi.is
Upplýsingar um fjarpróf: fjarprof@hi.is
Umsóknir um fjarpróf: Umsókn um fjarpróf hjá Háskóla Íslands