Greinar um þetta efni

Ugla

Ugla er innri vefur HÍ. Þar nálgast þú allar helstu upplýsingar um nám og námsframvindu. Skráningar, sjálfsafgreiðsla og greiðslur fara einnig fram í gegnum Uglu. 

Í Uglunni eru líka  tilkynningar, fræðsla og upplýsingar um þjónustu. Þar er að finna smáauglýsingar, ýmis kerfi og verkfæri sem nýtast í námi og starfi, og margt fleira

Gott er að temja sér að skrá sig inn á Uglu daglega.  Svör við algengum vandamálum við innskráningu. Þau dæmi sem eru tekin hér að neðan eru ekki tæmandi listi yfir þau fjölmörgu verkfæri og þjónustur sem finna má í Uglu.
 

Námið

Inni á Uglu finnur þú allt sem snýr að náminu þínu.

Skráningar og greiðslur

Á forsíðu Uglunnar fer fram skráning og greiðslur fyrir eftirfarandi atriði - í samræmi við kennslualmanak.

Fræðasviðin
Starfsfólk

Starfsmanna-Ugla veitir starfsmönnum aðgang að fyrri námsferli sínum (hafi starfsmaður verið nemandi Háskólans) og eru nemenda-Ugla og starfsmanna-Ugla samofnar. Mikilvægt er að starfsmenn noti starfsmannanetfang og starfsmanna-Uglu í starfsmannamálum, en nemandanetfang og nemanda-Uglu og netfang fyrir þau atriði sem tengjast eigin námi við Háskólann.

SmáUglan

SmáUglan er app sem hægt er að sækja í snjallsíma og spjaldtölvur í  App Store fyrir Apple og Play Store fyrir Androit. Þar er auðvelt að nálgast helstu upplýsingar sem notendur Uglu nýta daglega. 

Smáuglan býður ekki upp á sjálfsafgreiðslur, skráningar né greiðslur. Starfsmenn geta notað Smáuglu til að stimpla sig inn í Vinnustund.

Brautskráðir nemendur halda aðgangi að Uglu eftir brautskráningu, þó með ákveðnum takmörkunum. Aðgangur að forritum lokast, að undanskildri vefútgáfu af Office pakkanum. Brautskráðir nemendur halda einnig aðgangi sínum að háskólanetfanginu sínu ævilangt. 

Hætti nemandi námi, án þess að ljúka því er aðgangi að Uglu lokað ásamt nemandanetfangi og aðgangi að öllum hugbúnaði í boði Háskóla Íslands.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg