Þráðlaust net
Þráðlaust net er innifalið og netbeini er að finna í öllum herbergjum. Það er einnig netbeinir í sameiginlegu eldhúsi sem allir hafa aðgang að.
Ef gestur nær ekki samband við netbeini sem er staðsettur í herberginu, né þann sem er í sameiginlegu eldhúsi, er hægt að senda póst á Þjónustuborðið og fá uppgefið SSID og lykilorð á þeim netbeini sem er staðsettur næst þínu herbergi.
Sjónvarpið
Sjónvarpið er snjallsjónvarp, en er ekki tengt við neinar sjónvarpsþjónustur. Hægt er að tengja eigið apple TV og Chromecast við það.
Matsölustaðir og matvöruverslanir í nágrenninu
Nokkrar matsölur og veitingastaðir eru á háskólasvæðinu.
- Háma rekur veitingasölu á fyrstu hæð Sögu við vesturinngangin. Opið er frá kl. 8:00-15:00 og í hádeginu er hægt að kaupa ýmsa heita rétti.
- Á bensínstöðinni Orkan, við hlið Sögu, er Joe and the Juice og í innan við 10 mínútna göngufæri má finna Björnsbakarí, Kaffihús Vesturbæjar, Brauð & Co og Hagavagninn. Einnig er Dominio's Pizza skammt undan á Hjarðarhaga.
- Ef fólk vill kaupa sjálft í matinn þá eru Melabúðin og Krambúðin í u.þ.b. 10 mínútna göngufæri.
Strætó á háskólasvæðinu
- Strætisvagnar stoppa við flestar byggingar skólans.
- Á Háskólatorgi er skjár sem sýnir staðsetningu vagna í rauntíma ásamt komum og brottförum á stoppistöðvum Háskólans við Suðurgötu og Hringbraut.
Kynntu þér leiðaðkerfið og tímatöflur á vef strætó.
Hér er hægt er að lesa um sameiginlega aðstöðu á Sögu.
Símanúmer sem hægt er að hringja í ef upp koma vandamál:
- á almennum skrifstofutíma er hægt að hafa samband við Þjónustuborðið Háskólatorgi (mán-fim 8:30-16:00, fös 8:30-15:00) sími 525-4000
-
hægt er að hringja í vaktsíma Þjónustuborðs í síma 883-3888 á eftirfarandi tímum:
- mán-fim frá 16:00-20:00
- föstudaga 15:00-20:00
- laugardaga og sunnudaga frá 10:00 til 20:00
- Ef lykill er skilinn eftir inni í herberginu og kalla þarf út starfsmann, er tekið gjald samkvæmt gjaldskrá. Þetta á við utan opnunartíma Þjónustuborðsins.
- á öðrum tímum er hægt að hringja í Öryggismiðstöðina í síma 530-2400, en gestur þarf þá að bera kostnað af útkallsgjaldi Öryggismiðstöðvar (á aðeins við ef gestur hefur sjálfur týnt lykli eða læst hann inni).
Einnig er hægt að senda tölvupóst á Þjónustuborðið.
Í neyðartilfellum hringið í 112
Ef eitthvað bilar í herberginu vinsamlegast tilkynnið það til Þjónustuborðs.