Greinar um þetta efni

Herbergin á Sögu

Háskóli Íslands hefur til umráða 27 herbergi á 3. hæð í norðurálmu Sögu og eru þau ætluð fræðafólki sem kemur til samvinnu við Háskólann í skamman tíma. 

Einungis er hægt að leigja herbergi þeim sem hefur tengsl við Háskólann og eingöngu starfsfólk HÍ getur bókað herbergi fyrir sína gesti í gegnum bókunarvef. Lágmarksleigutími er þrjár nætur.

Herbergin og sameiginleg aðstaða

Öll herbergin eru tveggja manna með sér baðherbergi og eru leigð með sængurfatnaði og handklæðum.

Ekki er móttaka á staðnum og ekki er þrifið eða skipt um rúmföt á meðan á dvöl stendur. Hins vegar er hægt að panta þrif og auka rúmföt á virkum dögum gegn gjaldi, sjá Gjaldskrá á Sögu.

Gert er ráð fyrir að gestir haldi herbergjum sínum hreinum og í góðu ástandi meðan á dvöl stendur. Mikilvægt er að opna glugga reglulega svo raki safnist ekki upp.

Ef um lengri dvöl er að ræða og ekki hafa verið pöntuð þrif er gert ráð fyrir stuttu innliti í herbergið á 10–14 daga fresti.

Þráðlaust net er innifalið og netbeini er að finna í öllum herbergjum - það er einnig netbeinir í sameiginlegu eldhúsi sem allir hafa aðgang að.

Herbergin

Saga standard - Tveggja manna

25 m² herbergi með hjónarúmi og sérbaðherbergi. Í herberginu er lítill ísskápur sem þarf að tæma við brottför.

20230905_151251.jpg

Saga Twin - Tveggja manna

25 m² herbergi með tveim einbreiðum rúmum og sérbaðherbergi. Í herberginu er lítill ísskápur sem þarf að tæma við brottför.

20230905_151658_002.jpg

Saga Studio - Herbergi með eldhúsinnréttingu og möguleika á samtengdu herbergi

25 m² herbergi með lítilli eldhúsinnréttingu, hjónarúmi og sérbaðherbergi. Hægt er að bæta við samtengdu herbergi (+25 m²) og hýsa þannig allt að fjóra gesti. Samtengingu herbergja er þó aðeins hægt að staðfesta með stuttum fyrirvara, þar sem endanleg uppsetning ræðst af stöðu bókana hverju sinni. 

Herbergin með eldhúsinnréttingu eru fyrst og fremst ætluð til lengri dvalar, að lágmarki tvær vikur. 
 

Hægt er að opna á milli herbergja þegar samtengd herbergi eru bókuð saman.

20230928_135631.jpg

Hægt er að fá lánað barnarúm fyrir ungbörn, en annars er aðeins gert ráð fyrir tveimur manneskjum í hverju herbergi og er ekki mögulegt að bæta rúmi/bedda inn á herbergin.

Sameiginleg aðstaða

 

Þvottahús

Gestir geta notað sameiginlegt þvottahús á hæðinni, þar sem er þvottavél, þurrkari, þvottaefni og þvottagrindur. Einnig er straujárn og strauborð til afnota. Vinsamlegast athugið að ekki er ætlast til að þvottagrindurnar eða strauborðið séu tekin inn á herbergin. Í þvottahúsinu er einnig ryksuga og vagn með hreingerningarvörum fyrir þá sem vilja sjá sjálfir um þrif á herberginu sínu. 

Það er hægt að fá lánaða hárþurrku sem er staðsett í þvottahúsinu. Henni þarf svo að skila þangað aftur að lokinni notkun.

a5b9bcf6-fe93-4525-9ef7-460df5f0c6b6.jpg

Eldhús

Á hæðinni er sameiginlegt eldhús með aðstöðu til matargerðar. 

Eldhúsreglur

Regluleg grunnþrif eru framkvæmd í eldhúsinu. Fágangur eftir notkun er aftur á móti á ábyrgð gesta og er ekki hluti af þeim þrifum. Gestir skulu ganga vel frá eftir sig og ekki skilja neitt eftir í eldhúsinu.

Eldhús.jpeg    Eldhús1.jpeg
 

Frekari upplýsingar og aðstoð

Þjónustuborð HÍ
Háskólatorgi
Mán–fös: 8:30 - 15:00
Senda fyrirspurn
525-4000

 

Var þessi grein gagnleg?
2 af 2 fannst þessi grein gagnleg