Greinar um þetta efni

Fyrir komu á Sögu

Hér eru svör við algengum spurningum sem gott er að kynna sér áður en þú kemur á Sögu.

Hvaða þjónusta er á staðnum?

Ekki er móttaka á staðnum og ekki er þrifið eða skipt um rúmföt á meðan á dvöl stendur. Hins vegar er hægt að panta þrif og auka rúmföt gegn gjaldi. Það er gert með því að senda póst á Þjónustuborðið á Háskólatorgi. 

Gert er ráð fyrir að gestir haldi herbergjum sínum hreinum og í góðu ástandi meðan á dvöl stendur. Mikilvægt er að opna glugga reglulega svo raki safnist ekki upp.

Ef um lengri dvöl er að ræða og ekki hafa verið pöntuð þrif er gert ráð fyrir stuttu innliti í herbergið á 10–14 daga fresti. 

Hvernig fæ ég lyklana afhenta?

Gestir og tengiliðir fá sendan tölvupóst nokkrum dögum fyrir komu, með kóða fyrir lyklabox sem staðsett eru í anddyri Sögu. Í boxinu eru tvö lyklakort, annars vegar lykilkort að anddyri og lyftu og hins vegar lykilkort fyrir herbergið. 

Munið að taka lykilinn alltaf með þegar herbergið er yfirgefið til að koma í veg fyrir kostnað vegna útkalls.

Leiðbeiningar fyrir lyklabox.

Það er mjög mikilvægt að skila kortunum aftur í boxið við brottför svo þau verði aðgengileg fyrir næsta gest.  Vinsamlegast ruglið númerunum á boxinu aftur. 

Ef lykilkort glatast, verið svo væn að tilkynna það á Þjónustuborðið á Háskólatorgi. Gjald vegna glataðs lyklakorts er 5.000 kr.

Hvar er gengið inn á Sögu
Inngangurinn er að norðanverðu, til móts við Landsbókasafnið. Gestir fá aðgangskort sem veitir þeim aðgang frá anddyrinu að lyftusvæðinu, ásamt lykilkorti að herberginu. Herbergin eru á þriðju hæð (til hægri þegar komið er út úr lyftunni).
Saga inngangur3.jpg
Hvernig eru bílastæðamálin við Sögu?
Gjaldskylda er á bílastæðum við Sögu virka daga frá kl.7:00-17:00. Tímagjald er 230 kr. og greiðist í gegnum Parka appið.

Símanúmer sem hægt er að hringja í ef upp koma vandamál:

  • á almennum skrifstofutíma er hægt að hafa samband við Þjónustuborðið Háskólatorgi (mán-fim 8:30-16:00, fös 8:30-15:00) sími 525-4000 
  • hægt er að hringja í vaktsíma Þjónustuborðs í síma 883-3888 á eftirfarandi tímum:
    • mán-fim frá 16:00-20:00
    • föstudaga 15:00-20:00 
    • laugardaga og sunnudaga frá 10:00 til 20:00 
  • Ef lykill er skilinn eftir inni í herberginu og kalla þarf út starfsmann, er tekið gjald samkvæmt gjaldskrá. Þetta á við utan opnunartíma Þjónustuborðsins.
  • á öðrum tímum er hægt að hringja í Öryggismiðstöðina í síma 530-2400, en gestur þarf þá að bera kostnað af útkallsgjaldi Öryggismiðstöðvar (á aðeins við ef gestur hefur sjálfur týnt lykli eða læst hann inni).
Einnig er hægt að senda tölvupóst á Þjónustuborðið.
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg