Gjaldskrá
| Einfalt herbergi 25m2 | 7.500 kr. nóttin |
| Herbergi með eldhúsi 25m2 | 9.500 kr. nóttin |
| Herbergi með eldhúsi og samtengdu herbergi ( þegar sami gestur er með bæði herbergi bókuð) | 12.750 kr. nóttin |
Fræðasvið HÍ fá 25% afslátt af næturgjaldi.
Við hverja herbergisbókun bætist fast þjónustugjald upp á 7.500 kr. óháð því hvor gestur eða fræðasvið greiðir. Herbergin eru þrifin eftir brottför, en ekki meðan á dvöl stendur. Ef óskað er eftir þrifum á meðan á dvöl stendur er hægt að panta þau gegn gjaldi með því að senda tölvupóst á gestaibudir@hi.is.
| Afbókunargjald - ef afbókað með minna en 7 daga fyrirvara | Þrjár nætur greiddar |
| Síðbúin brottför (Late checkout) | Greitt fyrir eina auka nótt |
| Þrif fyrir lengri dvöl (með hreinum handklæðum og rúmfötum) - einungis í boði virka daga | 7.500 kr |
| Ný rúmföt og handklæði | 1.500 kr. |
| Ný handklæði | 500 kr. |
| Glatað lykilkort/lykilkorti ekki skilað | 5.000 kr. |
| Lykill læstur inni - útkall í gegnum vaktsíma Þjónustuborðs | 10.000 kr. |
| Útkall Öryggismiðstöðvar (ef gestur læsir sig úti utan vinnutíma umsjónarmanna HÍ) | Skv. gjaldskrá Þjónustuaðila |
Greiðslur
Gestir sem greiða sjálfir fá sendan greiðsluhlekk við komu, en einnig er hægt að koma á Þjónustuborðið á Háskólatorgi til að greiða. Greiðsla þarf að fara fram áður en dvölinni lýkur. Einnig er hægt að óska eftir því að reikningur sé sendur á stofnanir utan HÍ, bæði hér á landi og erlendis.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Þjónustuborð HÍ
Háskólatorgi
Mán–fös: 8:30 - 15:00
Senda fyrirspurn
525-4000