Greinar um þetta efni

Microsoft 365 (Office) pakkinn

Microsoft 365

Stefna Háskóla Íslands er að innleiða Microsoft 365 umhverfið fyrir alla notendur Háskólans og þannig einfalda samskipti og vinnu allra notenda.

Microsoft 365 (Office) hugbúnaðar pakkinn inniheldur Outlook, OneDrive, Word, Excel, PowerPoint, OneNote, Teams, Planner og Access. Einnig eru í boði ýmis sér forrit, vefforrit og viðbætur í gegnum Microsoft 365 umhverfið.

Uppsetning

Hægt er að hafa pakkann virkan á 5 tölvum, 5 spjaldtölvum og 5 símum.

Hér fyrir neðan er sýnt hvernig Microsoft 365 (Office) hugbúnaðurinn er settur upp á Windows, MacOS, Android og iOS.

Windows og MacOS
  1. Opnið office.hi.is í vafra og skráið ykkur inn með HÍ netfangi (notendanafn@hi.is) ef það er beðið um það.
  2. Smellið á "Setja upp forrit" (Install apps) og svo á "Microsoft 365-forritunum" (Microsoft 365 apps):
    ná í app b.png
  3. Smellið næst á "Install Office" til að hefja niðurhalið.
  4. Að lokum þarf aðeins að opna forritið og skrá sig inn að uppsetningu lokinni.
    Það er örlítið mismunandi milli vafra hvar og hvernig skráin birtist, hægt er að finna skrána undir "Niðurhal" (Downloads).
Android og iOS (iPhone og iPad)

Microsoft býður upp á fjölmörg forrit í gegnum app verslanir viðkomandi stýrikerfa. Word, Excel, PowerPoint og Onedrive er allt byggt inn í Microsoft 365 Copilot appið sem við sýnum hvernig á að nálgast:

  1. Leitið að "Microsoft 365 Copilot" í gegnum Play Store (Android) eða App Store (iOS) og smellið á "Install" eða "Get".
  2. Þegar tækið er búið að hlaða niður appinu þá skal keyra það og skrá ykkur þig inn í appið með HÍ netfanginu þínu (notandanafn@hi.is).
     

Einnig eru til ýmis önnur öpp sem hægt er að nota:

Íslenska fyrir Microsoft 365

Hægt er að sækja íslenskan tungumála pakka fyrir Office af vef Microsoft fyrir Windows.

Íslenska er ekki stutt á MacOS.

Vefútgáfan af Microsoft 365

Tæki sem eru of gömul eða styðja ekki við Microsoft 365 eins og ChromeOS og Linux geta notað vefútgáfuna af Microsoft 365, vefútgáfurnar eru mjög öflugar og því kemur það ekki mikið að sök.

Hægt er að finna veföppin inn á office.hi.is á vinstri valstikunni.

Algeng vandamál

Hér er farið yfir algeng vandamál sem notendur lenda í ásamt úrlausnum.

Ég get ekki breytt nýju skjali / Ég get ekki skráð mig inn í Office

MacOS:

Windows:

  • Opnaðu t.d Word, smelltu á "Skrá" (File), smelltu síðan á "Reikningur" (Account). Þarna áttu að sjá hvaða aðgangur er skráður fyrir Microsoft 365 leyfinu og þú getur breytt því ef þarf.
  • Ef það virkar ekki þá skalltu opna stillingar í Windows (settings) > Reikningur (accounts) > Aðgangur að vinnu eða skóla (Access work or school) og aftengja (disconnect) alla aðganga þarna undir :
    w11 wam 2 ísl.png
  • Brautskráðir nemendur geta ekki notað Microsoft 365 (Office), þú getur séð stöðuna þína inn á Uglu undir Uglan mín → Námskeiðin mín.
Aðstoð við ritvinnslu

Ritver Háskóla Íslands býður upp á aðstoð við fræðileg skrif fyrir nemendur og starfsfólk bæði á íslensku og ensku.

Í Ritveri geta nemendur HÍ pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Microsoft 365 styður ekki við stýrikerfið mitt

Microsoft 365 styður aðeins við síðustu 3 aðal útgáfunar af macOS ásamt Windows 10 og 11. Til þess að setja upp Microsoft 365 á eldri tölvur þá er hægt að reyna eftirfarandi: 

  1. Uppfæra stýrikerfið í nýrri útgáfu:
    • MacOS: Við mælum með að ná í það stýrikerfi sem Microsoft setur sem lágmarksskilyrði til þess geta sett upp Microsoft 365. Þegar þetta var skrifað styður Microsoft 365 Sequoia 15, Tahoe 26 og Golden Gate 26.
    • Windows: Við mælum með að uppfæra í Windows 11. Windows 10 fær ekki öryggisuppfærslur lengur og er því ekki talið öruggt.
  2. Einnig er hægt að ná í eldri útgáfur af Microsoft 365 pakkanum fyrir MacOS 12+ á vef Microsoft en því miður er það ekki í boði fyrir Windows.
    Hér eru síðustu útgáfunar af Microsoft 365 sem stýrikerfin studdu: 

Frekari upplýsingar og aðstoð

Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fim 08:30-16:00
Fös: 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222

Var þessi grein gagnleg?
3 af 8 fannst þessi grein gagnleg