Microsoft Project er notað til að skipuleggja og halda utan um verkefni í Microsoft 365 umhverfinu.
Starfsfólk og nemendur Háskóla Íslands hafa aðgang að Microsoft Project á vefnum eða í gegnum Teams viðbót sem heitir Planner sem er samsetning af Planner, Project og To Do.
Á vef Microsoft er hægt að fá ráðleggingu um hvenær skal nota þessar útgáfur af Project/Planner.
Einnig er í boði sjálfstætt Microsoft Project forrit fyrir Windows en notendur þurfa að fá úthlutaðan aðgang að því.
Aðgangur að Microsoft Project forritinu
Nemendur fá eingöngu aðgang að Microsoft Project forritinu í einstaka námskeiðum og geta því aðeins sett það upp ef leiðbeinandi námskeiðsins hefur sótt um það fyrir þau.
Starfsfólk þarf að hafa samband við sína deild/svið og láta þau leggja inn innkaupabeiðni.
Uppsetning á Microsoft Project fyrir Windows
- Opnið office.hi.is í vafra og skráið ykkur inn með HÍ netfangi (notendanafn@hi.is) ef það er beðið um það.
- Smellið á "Setja upp og fleira" (Install and more) og svo á "Setja upp forrit Microsoft 365" (Install Microsoft 365 apps):
- Undir "Office apps and devices" er valið "View apps & devices":
- Undir "Apps and devices" er valið "Install Project":
Ef Project birtist ekki á listanum þá hefur notanda ekki verið veittur aðgang að því.
- Appið á að birtast undir "Downloads".
- Notendur verða möguleg beiðnir um að skrá sig með HÍ notandanafni að uppsetningu lokinni.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Tölvuþjónustan Háskólatorgi
mán-fim 08:30-16:00
fös 08:30-15:00
hjalp@hi.is
525-4222