Háskóli Íslands hefur gert þjónustusamning við Ofar um rekstur og innleiðingu á miðlægu prentumsjónarkerfi fyrir starfsfólk HÍ. Þessi lausn kallast "Prentský". Starfsfólk getur prentað og skannað á öllum aðgengilegum Prentskýs prenturum á Háskólasvæðinu.
Einnig bjóða deildir/svið upp á prentara sem eru fyrir utan "Prentský". Hægt er að fá aðstoð við uppsetningu á þeim með því að senda inn beiðni til Upplýsingatæknisviðs með staðsetningu prentarans sem þú vilt tengjast við.
Útskipting á prenturum
Skipt verður um "gamla" prentskýið fyrir "nýja" í sumar. Einnig verða sumir prentarar á deildunum skipt út (að beiðni deildar).
Hægt að skrá sig inn á prentarann með PIN.
Einnig er hægt að tengja kort við notanda með því að leggja það að skannanum og stimpla inn PIN.
Svona finnur þú PIN:
- Opnið UniFLOW síðuna og skráið ykkur inn.
- Leggið "PIN" á minnið. Það sést undir "Identities".
Ef PIN sést ekki smellið þá á "New Identity", veljið PIN í fellilistanum og bætið því við. Þið gætuð þurft að hlaða síðuna aftur til að sjá þrípunktinn:
Nýja prentský - Uppsetning og staðsetning
Nýja prentskýið er staðsett á eftirfarandi stöðum:
- Aðalbygging: 3. hæð Hugvísindasvið.
- Aragata 9.
- Árnagarður: 2. og 4. hæð.
- Edda: 2 hæð (Hugvísindasvið).
- Endurmenntun: Skrifstofa 1 hæð.
- Gimli: 1, 2., 3. hæð og hjá félagsvísindastofnun.
- Hagi: 3. hæð.
- Háskólatorg: Mannauðsvið.
- Læknagarður: 3. hæð og 4. hæð.
- Lögberg: 4. hæð.
- Oddi: 1., 2., 3. hæð og doktorsrými.
- Raunvísindastofnun: 3. hæð.
- Saga: 4., 5., 5 hæð.
- Setberg: 3. hæð.
- VRIII: 1,. 2., 3. hæð.
Svona er það sett upp:
- Á tölvum á vegum háskólans er hægt að opna "Software Center" eða "Company Portal" og setja upp UniFLOW Prentský.
Ef forritið sést ekki í "Software Center" smellið þá á "Options" > "Computer Maintanance" og "Sync Now". - Þeir sem eru ekki með tölvu á vegum skólans smella á "Start printing" á Uniflow síðunni og ná í "Windows x64 "prentekill"".
- Keyrið prentrekillinn. Skráið ykkur inn með HÍ netfangi ef þið eruð beðin um það
- Nú er prentskýið uppsett. Þið veljið "Prentsky HI" þegar þið prentið með nýja prentskýinu.
- Undir "Start printing á Uniflow síðunni" skal ná í "Mac "prentekill"".
- Keyrið prentrekillinn. Opnið finder og staðsetjið SmartClientforMac drifið undir locations. Smellið á skránna.
- Smellið á "Continue":
- Veljið "Install":
- Samþykkið uppsetninguna með tölvu auðkennum:
- Leyfið forritinu að leita að prenturum. Smellið á "Allow":
- Smellið á "Close":
- Skráið ykkur inn með HÍ netfangi og lykilorði:
- Nú er prentskýið uppsett. Þið veljið "Prentsky HI" þegar þið prentið.
- Sækið "uniFLOW Online Print & Scan" í gegnum Google Play eða Apple App Store.
- Opnið UniFLOW síðuna og smellið á símann í uppi í hægra horninu:
- Skrifið hér inn kóðan sem birtist í Uniflow appinu á snjalltækinu:
- Nú er prentskýið uppsett. Þið veljið "Prentsky HI" þegar þið prentið.
- Sækið "UniFLOW Online" Chrome viðbótina.
- Opnið viðbótina og stimplið inn "https://hi.eu.uniflowonline.com/" undir URL:
- Smellið á "Sign in" og "Háskóli Íslands" og klárið innskráningarferlið.
- Nú er prentskýið uppsett. Þið veljið "uniFLOW Online" þegar þið prentið.
Gamla prentský - Uppsetning
Hér er sýnt hvar gamla prentskýið er staðsett:
-
Aðalbygging:
- 1.hæð undir stiga í anddyri.
- 1.hæð Skrifstofa rektors.
- 2.hæð herb.222 Fjármálasvið.
-
Askja:
- 1. hæð á skrifstofu sviðs.
- 2.hæð austurenda.
- Edda: 1. hæð (Árnastofnun).
- Eirberg: 3 hæð
-
Gróska:
- 1. hæð í Vísindagörðum.
- 3. hæð í Tölvunarfræði.
-
Nýji Garður:
- 1. hæð suðurendi.
- 2. hæð norðurendi.
- 3. hæð norðurendi.
-
Tæknigarður:
- 1. hæð.
- 2. hæð.
- 3. hæð.
- Setberg 1. hæð.
- Skólabraut 3. hæð.
- Veröld 3. hæð.
-
VR2:
- 2. hæð.
- 3. hæð.
Svona er það sett upp:
- Smelltu á starthnapp og skrifaðu „keyra“ (Run) og smelltu á „enter“:
- Skrifaðu inn slóðina \\prent.hi.is\prentsky-hi og smelltu á „Í lagi“ (OK):
- Þá ætti tölvan að tengjast prentskýinu, þegar því er lokið ættirðu að geta prentað út.
Prentarinn heitir "Prentský HÍ on prent.hi.is".
Prentun er svarthvít og báðum megin á síðu er sjálfgefið sé stillingum ekki breytt. - Þeir sem nota sínar eigin tölvur munu fá upp innskráningarglugga. Hér þarf að setja inn CS\ fyrir framan notandanafnið ykkar og einnig sleppa @hi.is. Hakið við "Muna skilríkin mín" (Remember my credentials).
- Það þarf að byrja á því að ná í prentrekla.
- Keyrðu upp skrána og kláraðu uppsetninguna á reklinum (Continue → Agree → Install).
- Smelltu á Apple merkið (eplið) efst í vinstra horninu og farðu í "System Preferences."
- Opnaðu "Printers & Scanners."
- Smelltu á plús-merkið neðarlega til vinstri í glugganum eða "Add Printer..." (eftir því hvaða útgáfu af MacOS þú ert með)
MacOS eldra en 13:
MacOS 13 Ventura: - Hægri smelltu efst (eða haltu niðri control og smelltu efst) og smelltu á "Customise Toolbar."
- Dragðu "Advanced" (tannhjólið) upp á stikuna og smelltu á "Done."
- Smelltu næst á "Advanced" efst í glugganum og hafðu stillingarnar eins og í þessu skjáskoti hér að neðan.
Type: LPD/LPR Host or Printer
Device: Another Device
URL: Settu inn slóðina lpd://notendanafn@prent.hi.is/prentsky-hi (athugaðu að nota þitt notandanafn í slóðinni án @hi.is)
Name og Location: Þessir reitir mega vera eins og þú vilt, t.d. Prentský og Háskóli Íslands.
Use: Veldu hér "Select Software...". Þá opnast gluggi sem sjá má í næsta skrefi. - Veldu rekilinn RICOH MP C3004ex PS (það er best að nota leitarreitinn til þess að finna hann) og smelltu á "OK:"
- Smelltu á "Add:"
- Þá er prentskýið uppsett á tölvunni og birtist eins og hver annar prentari.
- Prentun er svarthvít og prentað báðum megin nema þeim stillingum sé breytt.
Leiðbeiningarnar eru ekki tæmandi fyrir allar linux útgáfur en ættu að virka fyrir flesta.
- Opna "Print Settings" og smella á "+ Add". Gætir þurft að slá inn lykilorð nokkrum sinnum í ferlinu:
- Í "New Printer" glugganum smella á Network Printer -> Windows Printer via SAMBA. Undir SMB Printer setja inn: 130.208.143.155/prentsky-hi. Setja í Password uglu lykilorðið og í Username: CS\uglu notendanafnið þitt:
- Veldu Ricoh í listanum og ýttu á "Forward":
- Veldu MP C3004ex og Ricoh MP C3004ex PS og ýttu á "Forward":
- Breyttu PostScript í Adobe PostScript:
- Skrifaðu nafn að eigin vali í Location og ýttu á "Apply":
- Þegar uppsetningu er lokið ættirðu að geta prentað út. Prentun er svarthvít og báðum megin á síðu sjálfgefið ef stillingum er ekki breytt.
Vandamál með Prentský
Hér er hægt að finna lausnir við algengum vandamálum sem snúa að prentskýinu og prenturum á vegum deilda:
- Prentský prentarar láta Ofar vita sjáfkrafa ef blekið er búið eða ef eitthvað er að, hinsvegar ef það gerist ekki þá er hægt að senda inn beiðni með þjónustunúmeri prentarans sem sést á hliðinni, staðsetningu hans (í hvaða byggingu og á hvaða hæð hann er) og hvaða lit af tóner vantar.
- Deildir/svið sjá um innkaup á bleki fyrir sína prentara ásamt öllum pappír (nema í tölvuverum).
Ef skjalið sést ekki í prentbiðröðinni á prentaranum (eftir að þú skráir þig inn á hann) þá getur þú gert eftirfarandi:
- Athugið hvort þið eruð að prenta á "Prentsky HI" prentaranum.
- Athugið hvort "Uniflow SmartClient" er í gangi og "Connected" niðri í hægra horninu undir örinni:
- Ef forritið er ekki í gangi opnið það þá undir starthnappnum með því að leita að því og velja það:
- Ef forritið er nú þegar í gangi hægri smellið þá á það og veljið "uniFLOW SmartClient settings":
- Smellið hér á "Re-register" og þá ætti forritið að virka, prufið að prenta aftur:
Ef prentský hættir að virka fyrir einn notanda þá er yfirleitt best að eyða því úr tölvunni og setja það síðan aftur upp.
- Windows: Smelltu á "Start" hnappinn og skrifaðu inn "Printers and scanners", smelltu á það, veldu síðan prentský og "Remove device".
- MacOS: Opnaðu "System preferences", smelltu á Printers & scanners", veldu prentskýið og smelltu á mínus hnappinn.
- Algengasta orsök þess að það er ekki hægt að prenta er að tölvan er ekki tengd við HÍnet í gegnum Eduroam, hinet6 eða með vír (á Sturlugötu 8 er ekki hægt að prenta í gegnum Eduroam).
- Ef prentarinn er með skjá þá er oft hægt að sjá hvað vandamálið er á skjánum.
- Þú getur sent inn beiðni til Upplýsingatæknisviðs ef þú þarft að fá aðstoð.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fös 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222