Þegar tölva er ekki tengd neti HÍ getur verið lokað á ýmsar tengingar t.d. aðgangi að rafrænum greinum og bókum á vegum Landsbókasafns.
Ekki þarf lengur að vera á neti HÍ til að nota snara.is Þið fáið aðgang með því að fara á snara.is smella á "meira", "Innskráning" og "Innskrá með Microsoft".
Athugið að þessi VPN þjónusta er aðeins ætluð til þess að komast inn á lokuð kerfi HÍ, hún er ekki ætluð fyrir neitt annað.
Athugið að mörg hótel leyfa ekki notkun á VPN yfir þeirra net.
Uppsetning
Starfsfólk HÍ með vinnutölvu á vegum HÍ geta sett upp GlobalProtect í gegnum "Software Center" í tölvunni og fylgt svo frá skrefi 6.
- Sækið forritið "Windows 64 bit GlobalProtect agent" af vpn.hi.is. Skráið ykkur inn með notandanafni (notandanafn@hi.is) og lykilorði ef það er beðið um það.
- Opnið skrána. Hún ætti að birtast undir "Niðurhal" (Downloads).
- Smellið á "Next":
- Smellið aftur á "Next":
- Smellið á "Next" til að klára uppsetninguna:
- Þegar búið er að setja upp forritið þá sést GlobalProtect íkon 🌍︎ á verkstikunni. Oft felur hún sig undir örinni sem bendir upp.
Smellið á merkið: - Smellið á "Get Started":
- Hér skal slá inn "vpn.hi.is" og smella á "Connect":
- Nú þarf aðeins að skrá sig inn með hí netfanginu og þá er tölvan tengd við VPN. Ef það kemur ekki upp innskráningargluggi þá er forritið annaðhvort búið að sækja auðkennið sjálkrafa eða að hann er búin að opna nýjan flipa í vafranum.
Athugið að eftir fyrsta skipti sem tengst er VPN þá mun innskráninga aðferðin inn á tölvuna breytast, eina sem þarf að gera til að breyta henni til baka er að velja "Innskráningar aðferðir" (Sign in options) við innskráningu.
Til þess að aftengja VPN þá þarf að smella á strikin þrjú ☰ og velja "Disconnect":
Athugið að VPN forritið krefst að lágmarki MacOS 11.
- Sækið GlobalProtect fyrir Mac af vpn.hi.is. Skráið ykkur inn með notandanafni (notandanafn@hi.is) og lykilorði ef það er beðið um það.
- Opnið skrána og hefjið uppsetningu. Skráin ætti að birtast undir "Niðurhal" (downloads) möppunni.
- Smellið á "Continue":
- Smellið aftur á "Continue":
- Nú skal smella á "Install":
- Sláið inn auðkenni á tölvunni:
- Hér má velja "Move to Bin":
- Nú mun GlobalProtect 🌍︎ forritið sjást á valstikunni efst hægra megin. Smellið á merkið og veljið "Get started"
- Sláið inn vpn.hi.is undir "Portal".
- Nú þarf aðeins að skrá sig inn og þá er tölvan tengd við VPN:
Til þess að aftengja VPN þá þarf að smella á "Disconnect":
- Farðu í "Settings og Networks".
- Smelltu á ‘+’ í VPN.
- Gefðu tengingunni nafn t.d. VPN HÍ. Smelltu svo á "VPN Protocol" og veldu "Palo Alto Networks GlobalProtect".
- Settu í Gateway vpn.hi.is
- Smelltu á Connect.
- Nú opnast nýr gluggi (ath. þetta getur tekið smá stund) þar sem þú setur inn HÍ tölvupóstfangið þitt.
- Settu inn lykilorðið þitt (það sama og fyrir Uglu).
- Veldu "Yes".
- Smelltu aftur á "Connect" og svo "Login". ATH. það þarf að smella á það 1-3 sinnum áður en VPN-ið tengist.
Þeir sem eru ekki á algengustu Linux kerfunum verða að setja upp GlobalProtect-openconnect með GUI. Ekki er hægt að nota GUI útgáfuna þar sem HÍ kaupir ekki leyfi fyrir GUI, forritið var valið vegna þess að það býður upp á SAML auðkenningu.
- Forritið er sótt á Github. Notendur þurfa að finna sitt distro á listanum á Github
- Til að tengjast VPN-inu þarf síðan í terminal er sleginn inn skipunin: sudo -E gpclient connect vpn.hi.is
Ef vafri opnast ekki þarf að opna hann og keyra skipunina aftur. - Auðkenningin fer í gegnum Menntaský, sett er inn HÍ tölvupóstfang og lykilorð.
- Til að aftengjast er terminate skipunin CTRL-C notuð. Hægt er að nota sömu skel áfram með því að setja keyrsluna í bakgrunn með CTRL-Z og fá hana fram með skipuninni fg
- Náið í GlobalProtect™ í gegnum App Store. Opnið appið þegar niðurhali er lokið
- Hér er mælt með að samþykkja tilkynningar um stöðubreytingar (ef VPN hefur misst samband t.d.):
- Samþykkið skilmálana með því að smella á "OK".
- Undir "Address" skal skrifa "vpn.hi.is":
- Hér þarf að veita GlobalProtect heimild til þess að stofna VPN tengingu. Smellið á "Allow":
- Stimplið inn auðkenni fyrir símann:
- Nú þarf að skrá sig inn með HÍ netfangi (notandanafn@hi.is) og lykilorði:
- Núna er tækið tengt Háskólanetinu og kemst á aðgangsstýrðar síður:
Til þess að aftengja VPN þá er einfaldlega smellt á skjöldin í miðjunni.
- Náið í appið GlobalProtect í gegnum Play Store. Opnið appið þegar niðurhali er lokið
- Samþykkið skilmálana með því að smella á "OK":
- Hér er mælt með að samþykkja tilkynningar um stöðubreytingar (ef VPN hefur misst samband t.d.):
- Undir "Address" skal skrifa "vpn.hi.is":
- Nú þarf að skrá sig inn með HÍ netfangi (notandanafn@hi.is) og lykilorði.
- Hér þarf að veita GlobalProtect heimild til þess að stofna VPN tengingu. Smellið á "Í lagi" (OK):
- Núna er tækið tengt Háskólanetinu og kemst á aðgangsstýrðar síður:
Til þess að aftengja VPN þá er einfaldlega smellt á skjöldin í miðjunni.
Algeng vandamál
Ef forritið er fast á "Connecting" þá hefur það líklega ekki klárað innskráninguna.
- Veljið strikin þrjú og smellið á "Cancel".
- Lokið öllum vöfrum (Edge/Chrome/Safari/Firefox...).
- Reynið nú að tengjast aftur.
Frekari upplýsingar og aðstoð
Tölvuþjónustan Háskólatorgi
Mán - Fös 08:30-15:00
Senda fyrirspurn
525-4222