Microsoft 365 (Office)

Image
Microsoft lógó

Stefna Háskóla Íslands er að innleiða Microsoft 365 fyrir alla notendur Háskólans og þannig einfalda samskipti og vinnu allra notenda.

Microsoft 365 (Office) pakkinn inniheldur Outlook, OneDrive, Word, Excel, PowerPoint, OneNote, Teams, Planner, Access, og Publisher.

Microsoft 365 hugbúnaðurinn er ekki til fyrir ChromeOS eða Linux, en þess í stað er hægt að nota vefútgáfur af Microsoft 365 hugbúnaðinum. Vefútgáfurnar eru mjög öflugar og því kemur það kannski ekki mikið að sök.

Hér fyrir neðan er sýnt hvernig þú nærð í hugbúnaðinn og setur hann upp á Windows, MacOS, Android og iOS.

Hér fyrir neðan er sýnt hvernig þú nærð í hugbúnaðinn og setur hann upp á Windows eða MacOS.

  1. Hægt er að ná í Microsoft 365 (Office) í gegnum office.hi.is,
  2. Skráðu þig inn með HÍ netfanginu þínu (notandanafn@hi.is), ef það er beðið um það.
  3. Smelltu á "Setja upp forrit" (Install apps) og smelltu síðan á "Microsoft 365 forrit" (Microsoft 365 apps).
    Microsoft 365
  4. Þegar tölvan er búin að hlaða niður appinu þá skaltu keyra það, það er örlítið mismunandi milli vafra hvar og hvernig skráin birtist, hægt er að finna skránna undir "Niðurhal" (Downloads).
  5. Þegar uppsetningin er búin þá opnar þú það app sem þú vilt nota og skráir þig inn með HÍ netfanginu þínu.

Hér fyrir neðan er sýnt hvernig þú nærð í hugbúnaðinn og setur hann upp á Android eða iOS.

  1. Leitaðu að "Microsoft 365" í gegnum Play Store (Android) eða App Store (iOS) og smelltu á "Install" eða "Get".  
  2. Þegar tækið er búið að hlaða niður appinu þá skaltu keyra það.
  3. Skráðu þig inn í appið með HÍ netfanginu þínu (notandanafn@hi.is).

Þegar þú ert búin að skrá þig inn þá getur þú byrjað að nota appið.

Word, Excel, PowerPoint og Onedrive er allt byggt inn í Microsoft 365 appið. Einnig eru til fleiri Microsoft öpp sem hægt er að nota:

Tæki sem eru of gömul eða styðja ekki við Microsoft 365 geta notað vefútgáfuna af Microsoft 365, vefútgáfurnar eru mjög öflugar og því kemur það ekki mikið að sök.

  1. Opnaðu office.hi.is í vefvafra.
  2. Skráðu þig inn með HÍ netfanginu þínu (notandanafn@hi.is), ef það er beðið um það.
  3. Þú finnur öll vef-öppin sem eru í boði á vinstri valstikunni:
    Microsoft 365 hliðarstika

Starfsfólk þarf að tala við næsta yfirmann til að fá leyfi fyrir Project eða Visio. Þegar innkaupaferli lýkur verður hægt að ná í Project eða Visio eftir þessum leiðbeiningum. Microsoft Project og Visio birtist því starfsfólki sem hefur verið úthlutað leyfi á Microsoft (Office) 365 síðu Háskóla Íslands

Nemendur fá aðeins Project eða Visio í einstaka námskeiðum og geta ekki sett það upp nema leiðbeinandi námskeiðs hafi sótt um leyfi fyrir nemanda.

Project og Visio er ekki í boði fyrir macOS. Hægt er að nota Microsoft Project á vefnum eða sem forrit í Teams (Tasks eftir Planner og Verkefni (tasks by planner and to do)).

  1. Finndu fellivalmyndina uppi hægra megin á síðunni og veldu "Setja upp forrit" (Install apps) → "Aðrir uppsetningarkostir" (other install options):
    Project & visio
     
  2. Undir "Office apps and devices" velur þú "View apps and devices":
    UTS-hugbunadur-Projects_Publisher2
  3. Undir "Apps and devices" velur þú síðan "Install [Appið]":
    Projects_Publisher3

Algeng vandamál

Oft getur vandamálið tengst gömlum leyfum á tölvunni

  • Windows: Opnaðu t.d Word, smelltu á "Skrá" (File), smelltu síðan á "Reikningur" (Account). Þarna áttu að sjá hvaða aðgangur er skráður fyrir Microsoft 365 leyfinu og þú getur breytt því ef þarf.
  • MacOS: Athugið hvort það sé takki á fyrsta skjánum í Word t.d. sem segir "Activate", ef ekki þá virkar að nota license removal tool til þess að fjarlægja öll M365 leyfi úr tölvunni, síðan þarf aðeins að skrá sig inn með HÍ netfanginu (Sama og notað er í Uglu).

Ef þú getur ekki breytt nýju skjali þá ertu líklega brautskráður, þú getur séð stöðuna þína inn á Uglu undir Uglan mín → Námskeiðin mín.

  • Ef þú ert nemandi en skráður sem brautskráður þá verður þú að tala við Nemendaskrá eða deildina þína.
  • Starfsfólk á ekki að notast við nemenda aðganga við störf, þau eiga að fá nýtt notandanafn frá yfirmanni.
  • Brautskráðir missa aðgang að Microsoft 365 öppunum en halda aðgangi að vef-útgáfunni af Microsoft 365 (fyrir utan Teams).

Ritver Háskóla Íslands býður upp á aðstoð við fræðileg skrif fyrir nemendur og starfsfólk frá öllum deildum og sviðum Háskólans á bæði íslensku og ensku.

Í Ritveri geta nemendur HÍ pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Microsoft 365 styður aðeins við síðustu 3 aðal útgáfunar af macOS ásamt Windows 10 og 11. Til þess að setja upp Microsoft 365 á eldri tölvur þá er hægt að reyna eftirfarandi: 

  1. Uppfæra stýrikerfið í nýrri útgáfu
  2. Einnig er hægt að ná í eldri útgáfur af Microsoft 365 pakkanum fyrir MacOS á vef Microsoft en því miður er það ekki í boði fyrir Windows.
    Hér eru síðustu útgáfunar af Microsoft 365 sem stýrikerfin studdu: 

Hægt er að nota vefútgáfu af Microsoft 365. Vefútgáfurnar eru mjög öflugar og því kemur það kannski ekki mikið að sök.

Einnig er hægt að nota Microsoft 365 pakkann í tölvuverunum.

Þessi villa kemur vegna árekstra við aðra skóla/vinnu aðganga sem eru tengdir við tölvuna. Hér að neðan er sýnt hvernig villan er leyst í Windows 10 og 11.

Windows 10

  1. Opnið "Upphafsvalmynd" (Start menu). Leitið að og veljið "Aðgangur að vinnu eða skóla" (Access work or school): 
    M365 Wam villa w10
  2. Hér skal velja alla aðganga og smella á "Aftengja" (Disconnect):
    M365 Wam villa w10
  3. Nú á villan að hverfa.

Windows 11

  1. Opnið "Stillingar" (Settings).
    Veljið "Reikningar" (Accounts) og smellið á "Aðgangur að vinnu eða skóla" (Access work or school):
    M365 Wam error w11
  2. Hér skal velja alla aðganga og smella á "Aftengja" (Disconnect):
    M365 Wam error w11
  3. Nú á villan að hverfa.