Til að halda áfram námi næsta háskólaár þarftu að taka þátt í árlegri skráningu í Uglu og greiða skrásetningargjaldið. Ef þú skráir þig ekki, verður litið svo á að þú hafir hætt námi.
Árleg skráning fer fram á vormánuðum. Nákvæmar dagsetningar eru í Háskóladagatali.
Hvernig fer árleg skráning fram?
- Skráðu þig inn í Uglu.
- Opnaðu árlega skráningu af forsíðu Uglu.
- Veldu námskeið fyrir bæði haust- og vormisseri.
- Vistaðu valið.
- Greiddu skrásetningargjaldið í Uglu.
Eindagi skrásetningargjalda er 4. júlí.
Með greiðslu skrásetningargjaldsins staðfestir þú að þú ætlir að halda áfram námi.
Skoðaðu kennsluskrá námsleiðarinnar frá því námsári sem þú hófst námið. Þar finnur þú námskröfur og upplýsingar um skyldunámskeið, bundið val og valnámskeið.
- Skyldunámskeið (S): Þú þarft að ljúka öllum skyldunámskeiðum námsleiðarinnar.
- Bundið val (B): Þú velur tiltekinn fjölda námskeiða eða eininga úr afmörkuðum hópi.
- Valnámskeið (V): Þú velur námskeið samkvæmt þeim reglum sem gilda um námsleiðina.
Þú getur breytt námskeiðaskráningunni síðar á auglýstum skráningartímabilum.
Ef þú hyggst brautskrást á komandi skólaári velur þú brautskráningu við árlega skráningu.
Ef þú misstir af árlegri skráningu skaltu hafa samband við Nemendaskrá og óska eftir skráningu.
Beiðnin þarf að berast úr HÍ-netfanginu þínu á nemskra@hi.is.
Ef þú ert óviss um hvaða námskeið þú átt að velja skaltu hafa samband við deildina þína eða bóka tíma hjá náms- og starfsráðgjafa.