Greinar um þetta efni

Árleg skráning og skráning í áfanga

Árleg skráning og námskeiðaval

Árleg skráning fer fram í Uglu á vormánuðum samkvæmt kennslualmanaki. Til að halda áfram námi næsta skólaár þarftu að skrá þig í árlegri skráningu. Að því loknu færðu upp möguleikann á að greiða skrásetningargjaldið í Uglunni þinni. Með því að greiða skrásetningargjaldið staðfestir þú að þú ætlir að halda áfram námi.

Ef þú skráir þig ekki á þessu tímabili er litið svo á að þú hafir hætt námi. 

Þau sem hyggjast brautskrást á komandi skólaári, skrá sig í árlegri skráningu í brautskráningu. 

Hvernig vel ég námskeið?

Við árlega skráningu velur þú námskeið fyrir bæði haust- og vormisseri.

Þú getur síðan endurskoðað námskeiðaskráninguna þína:

  • í upphafi haustmisseris
  • í lok haustmisseris og í byrjun vormisseris 

Við námskeiðaval er gott að styðjast við kennsluskrá námsleiðarinnar.

Hvernig sé ég hvaða námskeið ég þarf að taka? Í kennsluskrá námsleiðarinnar finnur þú yfirlit yfir námskröfur undir flipanum Námskröfur. Mikilvægt er að skoða kennsluskrána frá því námsári sem þú hófst námið. 

Hvað eru skyldunámskeið (S)?

Skyldunámskeið eru merkt með S. Þú þarft að ljúka öllum skyldunámskeiðum til að uppfylla skilyrði til brautskráningar.

Hvað er bundið val (B)?

Bundið val er merkt með B. Þá þarftu að ljúka ákveðnum fjölda eininga innan tiltekins námskeiðahóps.

Dæmi: Ef þrjú námskeið eru í boði en krafa er um tvö námskeið getur þú valið hvaða tvö námskeið þú tekur.

Hvað eru valnámskeið (V)?

Valnámskeið eru merkt með V og eru valfrjáls innan þeirra reglna sem gilda um námsleiðina.

Hvernig skrái ég mig úr námskeiðum?

Þú sérð námskeiðin þín í Uglu (Uglan mín – Námskeiðin mín) og aftan við hvert námskeið er tákn fyrir úrsögn sem þú smellir á.

Síðasti dagur til úrskráningar á haustmisseri er 15. september og á vormisseri 1. febrúar.

Athugaðu að breytingar á námskeiðaskráningu koma ekki fram í stundatöflu fyrr en eftir nokkra klukkutíma.

 

Ég er óviss um námskeiðaval mitt

Ef þú ert óviss um hvaða námskeið henta best fyrir þig er gott að hafa samband við deildina þína eða náms- og starfsráðgjafa.

Ég gleymdi árlegri skráningu

Ef þú misstir af árlegri skráningu getur þú haft samband við Nemendaskrá og óskað eftir skráningu.

  • Beiðnin þarf að berast úr HÍ-netfangi.
  • Beiðnin þarf að berast fyrir 4. júlí.

Eftir 4. júlí þarf leyfi deildar til að enduropna feril og greiða þarf leyfisgjald auk árlegs skráningargjalds.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg