Greinar um þetta efni

Leiga á stofum

Háskóli Íslands býður upp á leigu á kennslustofum og sölum fyrir ýmsa viðburði utan kennslutíma. 

Bókunartímabil

Hægt er að leigja flestar stofur í HÍ en deildir HÍ hafa forgang á stofubókanir og því er takmörkunum háð með hve miklum fyrirvara er hægt að bóka stofur.

  • Fyrir vormisseri er byrjað að bóka eftir 20. desember
  • Fyrir haustmisseri er byrjað að bóka eftir 20. ágúst

Beiðnir þurfa að berast með að minnsta kosti 2-3 virkra daga fyrirvara.

Tími fyrir undirbúning og frágang er hluti af bókuninni og þarf því að vera innan bókaðs tíma.

Athugið að ekki er hægt að bóka stofur eða sali á prófatíma. Tímabil prófa er að finna í Kennslualmanakinu.

Hagnýtar upplýsingar áður en þú bókar

Starfsfólk HÍ

Hátíðarsalur í Aðalbyggingu

Hátíðarsalur er eingöngu leigður til starfsfólks Háskóla Íslands.

Grunngjald er 40.500 kr. fyrir fyrstu tvær klukkustundirnar sem salurinn er leigður en hver klukkustund umfram það kostar 13.800 kr.

Litla torg

Fastráðnu starfsfólki HÍ, FS og tengdra stofnana stendur til boða að leigja salinn Litla Torg fyrir einkasamkvæmi.

  • Hægt er að leigja salinn til kl. 21:00 á virkum dögum og til kl 17:00 á laugardögum. Ef óskað er eftir leigu utan opnunartíma bygginga þarf að greiða fyrir opnun og lokun á byggingu.
  • Leiga fyrir allt að 4 klst. er 40.000 kr. og 80.000 kr. fyrir allt að 8 klst.
  • Veitingar skal kaupa af Hámu sem er með veitingaleyfi í húsnæðinu.
  • Leigutaki ber ábyrgð á frágangi og þrifum salarins. Ef óskað er, getur rekstur fasteigna útvegað ræstingarfólk.

Til að bóka stofu eða sal þarftu að fylla út beiðni og ganga úr skugga um að allir nauðsynlegir reitir séu útfylltir. 

Athugið að ef bóka á fleiri en eitt skipti, skráið þá fyrstu dagsetninguna og takið hinar fram í lýsingu. 

Nemendur og nemendafélög

Nemendur geta bókað stofu einu sinni í viku á virkum dögum í allt að 3 klukkustundir vegna hópavinnu (sameiginlegt skilaverkefni).

Það sem þarf að koma fram í lýsingu í bókunarbeiðninni er:

  • hverjir skipa hópinn
  • númer námskeiðs

Athugið að ef bóka á fleiri en eitt skipti, skráið þá fyrstu dagsetninguna og takið hinar fram í lýsingu. 

Nemendafélög og önnur félög nemenda innan HÍ

Formenn nemendafélaga og annarra félaga nemenda geta óskað eftir bókunum í þeirra nafni. Félögin geta bókað eina stofu eða fundarherbergi gjaldfrjálst að hámarki einu sinni í viku á virkum dögum, í allt að þrjár klst. Séu fundir bókaðir þéttar eða lengur en í þrjár klst þarf að greiða fyrir allar bókanir.
Til að bóka stofu eða sal þarftu að fylla út beiðni og ganga úr skugga um að allir nauðsynlegir reitir séu útfylltir.
Athugið að ef bóka á fleiri en eitt skipti, skráið þá fyrstu dagsetninguna og takið hinar fram í lýsingu. 

Outlook

Það er eitt rými (HT-118) á fyrstu hæð Háskólatorgs sem nemendur geta bókað sjálfir í gegnum Outlook.
Aðrir

Aðilar utan HÍ geta óskað eftir að bóka stofur og sali.

Til að bóka stofu eða sal þarftu að fylla út beiðni og ganga úr skugga um að allir nauðsynlegir reitir séu útfylltir.

Athugið að ef bóka á fleiri en eitt skipti, skráið þá fyrstu dagsetninguna og takið hinar fram í lýsingu. 

Bókunarbeiðni jafngildir ekki staðfestri bókun og telst ekki gild fyrr en staðfesting hefur borist.

Bókunarbeiðni

Algengar spurningar um bókun kennslustofa

Hver sér um að bóka stofur fyrir námskeið?

Skrifstofur sviða/deilda sjá um að bóka öll regluleg námskeið samkvæmt kennsluskrá og einstaka fundi á vegum deilda HÍ.

Hvar finn ég upplýsingar um stofurnar?

Upplýsingar um stofur og sætafjölda má finna á heimasíðu HÍ.

Þarf alltaf að greiða fyrir leigu á stofum innan HÍ?

Það þarf ekki að greiða fyrir einstaka fundi eins og t.d. deildarfundi, nefndarfundi og fræðslufundi sem tengjast starfi sviða/deilda HÍ.

Það þarf að greiða fyrir vinnu umsjónarmanna ef þörf er á aðstoð þeirra á meðan eða eftir að fundum lýkur.

Miðað er við að fundir sem þessir séu

  • ekki oftar en einu sinni í viku
  • staðsettir í einni stofu/fundarherbergi
  • og taki innan við þrjár klukkustundir.

Ef bókanir eru fleiri en ein stofa vegna sama viðburðar í sömu viku skal greitt fyrir báðar/allar bókanir.

Streymisþjónusta

Aðilar innan HÍ geta óskað eftir streymisþjónustu í gegnum Uglu. 

Ef utanaðkomandi aðili óskar eftir streymisþjónustu þarf að hafa samband við fyrirtækin Exton eða Luxor, sem veita slíka þjónustu.

Veitingar

Fyrir veitingar á Háskólatorgi skal hafa samband við Hámu. Matseðil og pöntunarform er að finna á heimasíðu þeirra.

Fyrir veitingar í Veröld skal hafa samband við Súpustöðina.

Fyrir veitingar í Eddu skal hafa samband við kaffihúsið Ými.

Í öðrum byggingum er heimilt að versla við aðra veitingaaðila.

Gjaldskrá fyrir leigu á kennslustofum – grunngjald miðast við fyrstu 2 klukkustundirnar.

Fjöldi sæta Grunngjald Hver klukkustund umfram tvær
19 eða færri 9.200 kr. 3.500 kr.
20–29 11.500 kr. 4.600 kr.
30–39 13.800 kr. 5.800 kr.
40–59 16.100 kr. 6.900 kr.
60–89 23.000 kr. 9.200 kr.
90–119 28.800 kr. 10.000 kr.
120–149 33.000 kr. 11.500 kr.
150–200 40.500 kr. 13.800 kr. þ.m.t. Hátíðasalur
201–300 52.000 kr. 17.300 kr.

Bókanir um helgar bera 20% álag.

Ef bókun er vegna starfsemi á vegum Háskóla Íslands er veittur 25% afsláttur af gjaldskrá.

Var þessi grein gagnleg?
2 af 3 fannst þessi grein gagnleg