Bílastæði við Háskóla Íslands eru gjaldskyld.
Gestir
Bílastæðin á háskólasvæðinu eru opin öllum gegn gjaldi. Gestir greiða alltaf tímagjald og geta ekki verið með áskrift.
Skráning í áskrift
Gjaldtaka er virka daga frá kl. 7:00 til 17:00. Mánaðaráskrift kostar 1.500 kr. og fer skráning í áskrift fram í gegnum Parka appið.
Starfsfólk og nemendur HÍ þurfa að gefa Parka leyfi í Uglu til að fá staðfestingu á námi eða starfi við háskólann.
Tímagjald á öllum stæðum er 230 kr. (sama og verðflokkur P4 hjá Bílastæðasjóði).
Athugaðu að réttur bíll sé skráður í appinu
Hver einstaklingur getur skráð fleiri en eitt bílnúmer í áskrift en aðeins eitt getur verið virkt í einu. Ný númer eru skráð í Parka-appinu og í áskriftarhlutanum velur þú hvaða bíll á að vera virkur hverju sinni. Ef þetta gleymist áttu á hættu að fá sekt.
Segja upp áskrift
Vakin er athygli á því að notandi sem er í áskrift að bílastæðum við Háskóla Íslands í gegnum Parka appið ber sjálfur ábyrgð á því að segja upp áskrift í appinu sé þess óskað. Ef aðilar vilja hætta í áskrift, yfir sumartímann til dæmis, er það á þeirra ábyrgð að segja upp áskrift fyrir frí og skrá sig aftur í áskrift að fríi loknu.
Að öllu óbreyttu endurnýjast áskriftarleið Parka sjálfkrafa mánaðarlega.
Bílastæðum er skipt í tvo flokka
- Valin skammtímastæði (H1) nálægt byggingum eru gjaldskyld með tímagjaldi.
-
Tímagjald er tekið af öðrum stæðum, en starfsfólk og nemendur geta nýtt þau sem langtímastæði með mánaðaráskrift (H2).
Annað
- Aðilar með P-merki og stæðiskort fyrir hreyfihamlaða leggja án endurgjalds.
- Starfsmenn og nemendur í Læknagarði geta nýtt sömu kjör á Landspítalasvæðinu.
- Samráð hefur verið haft við Landspítalann og aðrar nágrannastofnanir svo nemendur og starfsfólk á Heilbrigðisvísindasviði, sem eiga erindi bæði á lóð HÍ og LSH, þurfi ekki að borga tvisvar fyrir stæði.
- Fyrirspurnir sem tengjast appinu, greiðslum, sektum og slíku eiga að berast til Parka. Ef það er eitthvað annað sem tengist bílastæðamálum má senda póst á bilastaedi@hi.is.
Nánari upplýsingar um gjaldtöku fyrir bílastæði og leiðbeiningar fyrir áskrift í Parka appinu er að finna á upplýsingasíðu Parka um bílastæði við HÍ.
Parka lausnir ehf. mun annast þjónustu við rekstur og gjaldtöku fyrir bílastæðin.
Þjónustuver, sími: 519 7888