Aðgangur að læstri hjólaaðstöðu
Hægt er að sækja um aðgang að læstri hjólaaðstöðu hjá Háskóla Íslands með því að fylla út umsóknarformið neðst á síðunni.
Til að komast inn í hjólaskýli þarf að hafa gilt aðgangskort frá HÍ:
- starfsmannakort,
- eða stúdentakort með aðgangi.
Aðgangur er að jafnaði virkjaður innan 1–2 virkra daga frá samþykktri umsókn.
Athugið að ekki er heimilt að hlaða rafhjól eða rafskútur í hjólaaðstöðu Háskólans.
Skilmálar
- Notendur skuldbinda sig til að ganga vel um hjólaskýlin.
- Notendum er óheimilt að hleypa óviðkomandi aðilum inn í hjólaskýlin.
- Með því að samþykkja skilmálana samþykkir notandi að svæðið sé vaktað með öryggismyndavélum í þeim tilgangi að auka öryggi og vernda eigur. Nánari upplýsingar
Staðsetning læstrar hjólaaðstöðu við HÍ
Við Læknagarð
Við Læknagarð stendur aðgangsstýrður hjólagámur. Aðstaðan er opin allan sólarhringinn fyrir þá sem hafa fengið samþykkta umsókn.
Í kjallara Sögu
Í kjallara Sögu er læst hjólaaðstaða í rými S-010. Beint á móti er búnings- og sturtuaðstaða. Aðgangur er veittur þeim sem hafa fengið samþykkta umsókn og er opnunartími frá kl. 06:00–24:00.