Eftir komuna til Íslands þarftu að sinna ýmsum praktískum atriðum, svo sem skráningu, dvalarleyfi, kennitölu, sjúkratryggingum og rafrænum skilríkjum. Hér finnur þú yfirlit yfir helstu opinberu þjónustuaðila, hugtök og skref sem alþjóðlegir nemendur þurfa að þekkja.
Ef þú ert með dvalarleyfi vegna náms þarftu að ljúka ákveðnum skrefum eftir komuna til Íslands áður en leyfið er gefið út.
- Mættu í myndatöku hjá Útlendingastofnun eða sýslumanni utan höfuðborgarsvæðisins. Taktu vegabréfið þitt með.
- Tilkynntu dvalarstað þinn á Íslandi.
- Farðu í læknisskoðun innan tveggja vikna frá komu ef þess er krafist. Krafan á aðeins við um einstaklinga frá tilteknum löndum.
Myndin er notuð á dvalarleyfiskortið. Þegar öllum skilyrðum hefur verið fullnægt getur Útlendingastofnun gefið út dvalarleyfið og óskað eftir skráningu lögheimilis hjá Þjóðskrá.
Kennitala er tíu stafa auðkennisnúmer sem er notað í opinberri þjónustu, bankaviðskiptum og ýmiss konar annarri þjónustu á Íslandi.
Hvernig þú færð kennitölu fer eftir ríkisfangi þínu:
- Nemendur frá löndum utan EES/EFTA fá kennitölu almennt í tengslum við útgáfu dvalarleyfis.
- Nemendur frá EES/EFTA þurfa sjálfir að sækja um skráningu hjá Þjóðskrá ef þeir ætla að hafa lögheimili á Íslandi.
Þegar þú hefur fengið kennitölu þarftu að mæta á þjónustuborðið á Háskólatorgi til að ljúka innritun og fá aðgang að Uglu. Taktu með þér gild persónuskilríki með mynd.
Ugluaðgangurinn virkjast 2 klukkustundum eftir innritun.
Nemendur frá löndum innan EES sem stunda nám í aðeins eitt misseri geta innritast án kennitölu.
Rafræn skilríki eru notuð til að skrá sig inn í opinbera þjónustu, undirrita skjöl og auðkenna sig á öruggan hátt á netinu.
Til að fá rafræn skilríki þarftu íslenska kennitölu og gild, viðurkennd persónuskilríki. Þú getur fengið skilríkin í Auðkennisappinu eða á SIM-korti. Alþjóðlegir nemendur þurfa almennt að mæta á skráningarstöð til að fá þau útgefin.
Ef þú sækir um dvalarleyfi vegna náms þarftu að leggja fram staðfestingu á sjúkratryggingu sem uppfyllir skilyrði Útlendingastofnunar.
Tryggingin þarf meðal annars að:
- gilda á Íslandi,
- gilda í að minnsta kosti þrjá mánuði frá skráningu lögheimilis og
- vera að lágmarksupphæð 2.000.000 kr.
Gakktu frá tryggingunni áður en þú kemur til Íslands. Einstaklingar sem flytja lögheimili sitt til Íslands þurfa almennt að bíða í þrjá mánuði áður en þeir verða sjúkratryggðir hér. Aðrar reglur geta átt við ef þú flytur frá landi innan EES eða landi sem Ísland hefur gert samning við.
Sjá kröfur um sjúkratryggingu vegna dvalarleyfis · Sjá upplýsingar um sjúkratryggingar við flutning til Íslands
Þú gætir þurft íslenskan bankareikning til að taka við launum, greiða reikninga og nota ýmsa þjónustu.
Bankar setja eigin skilyrði fyrir stofnun reiknings. Yfirleitt þarftu að framvísa gildum persónuskilríkjum og gögnum sem staðfesta stöðu þína á Íslandi. Kynntu þér kröfur bankans áður en þú sækir um.
Ef þú leigir húsnæði á Íslandi gætir þú átt rétt á húsnæðisbótum sem greiða niður hluta leigunnar.
Til að sækja um þarftu almennt að:
- vera 18 ára eða eldri,
- eiga skráð lögheimili á Íslandi,
- vera með leigusamning sem gildir í að minnsta kosti þrjá mánuði og
- hafa leigusamninginn skráðan í leiguskrá HMS.
Fleiri skilyrði gilda, meðal annars um tekjur og eignir. Sæktu um eins fljótt og hægt er þar sem húsnæðisbætur eru almennt ekki greiddar fyrir tímabil fyrir þann mánuð sem sótt er um.
Réttur þinn til að vinna á Íslandi fer eftir ríkisfangi og dvalarstöðu.
- Ríkisborgarar EES/EFTA-ríkja þurfa ekki atvinnuleyfi til að vinna á Íslandi.
- Nemendur með gilt dvalarleyfi vegna náms mega vinna án sérstaks atvinnuleyfis í allt að 60% starfshlutfalli á námstíma.
- Nemendur mega vinna í fullu starfi í skipulögðum hléum milli anna, meðal annars í sumar- og jólaleyfum.
- Ef þú sækir um námsmannadvalarleyfi í fyrsta sinn máttu ekki hefja störf fyrr en dvalarleyfið hefur verið gefið út.
Ef þú vinnur hjá fleiri en einum atvinnurekanda gildir 60% hámarkið um samanlagt starfshlutfall þitt. Sjálfstæð atvinnustarfsemi er ekki heimil á grundvelli námsmannadvalarleyfis.
Nánar um rétt til að vinna samhliða námi
Skattar og persónuafsláttur
Ef þú vinnur á Íslandi er skattur dreginn af launum þínum. Þú þarft að upplýsa vinnuveitandann um hvort og frá hvaða tíma nota eigi persónuafsláttinn þinn og hvaða skattþrep eigi að gilda.
Réttur til persónuafsláttar fer meðal annars eftir dvalar- og lögheimilisskráningu þinni. Ef þú ert með fleiri en einn vinnuveitanda þarftu að gæta sérstaklega að því að rétt skattþrep og persónuafsláttur séu notuð.
Þú þarft einnig að yfirfara og skila skattframtali árlega, yfirleitt í mars.
Nánar um persónuafslátt við flutning til Íslands · Nánar um skattframtal