Greinar um þetta efni

Kennarar í tímabundnum kennslustörfum

Stundakennarar við HÍ eru fjölbreyttur hópur með mismikla ábyrgð. Því geta ekki allar upplýsingar átt við alla. Mikilvægt er að:

  • Hafa skýrar boðleiðir til umsjónarkennara eða deildar.
  • Leita til kennslu- og nemendaþjónustu viðkomandi sviðs ef þörf krefur.

Áður en kennsla hefst

Kynning og námskeið fyrir nýja kennara

Kennslumiðstöð HÍ býður upp á kynningardaga fyrir nýja kennara, þar sem farið er yfir helstu þætti kennslunnar og stuðning sem kennurum stendur til boða. Nýir kennarar eru hvattir til að mæta. Kennslumiðstöð veitir einnig ráðgjöf og hledur námskeið í kennslufræðum.

Setberg - Kynningarnámskeið og stuðningur

Aðgangur að innri kerfum

Deildarskrifstofur útvega nýju starfsfólki notandanafn og lykilorð til að fá aðgang að innri kerfum Háskóla Íslands. Helstu kerfi eru:

  • Ugla (innri vefur HÍ)
  • Canvas (námsumsjónarkerfi) - Öll námskeið eru með kennsluvef þar sem fram fer efnisbirting, verkefnaskil, endurgjöf og fl.
  • Inspera er rafrænt prófakerfi fyrir skrifleg próf.

Einnig veitir notandanafnið og lykilorðið aðgang að ýmsum öðrum kerfum HÍ.

Skipulag og tímasetningar

Kennslualmanak

Mikilvægt er að stundakennarar þekki til kennslualmanaks HÍ. Íalmanakinu er að finna allar helstu dagsetningar skólaársins, t.d. upphaf og lok kennsluársins, prófatímabil, sjúkra- og endurtökuprófatímabil o.fl.

Kennslualmanak

Vakin er athygli á að lengd kennslumissera er mislöng eftir sviðum og því er nauðsynlegt að leita upplýsinga hjá deildarskrifstofu/sviðsskrifstofu. 

Stundaskrár
Allar upplýsingar um hvar kennsla fer fram hverju sinni og tímasetningu er að finna á stundaskrá, á vefsíðu deildar og á Uglunni undir  "Stundaskráin mín".

Undirbúningur kennslu

Bókakaup

Stundakennurum getur verið heimilt kaupa kennslubækur hjá Bóksölu Stúdenta í fyrsta skipti sem þeir kenna námskeið eða þegar breytingar verða á kennsluefni námskeiðs. Sækja þarf um hjá viðkomandi deild.

Kennsluáætlun
Gert er ráð fyrir að kennarar hlaði upp kennsluáætlun í Canvas í upphafi misseris, helst ekki síðar en viku áður en kennsla hefst. Kennsluáætlunin ætti að innihalda yfirlit yfir kennsluefni, verkefnaskil og próf. Gagnlegar upplýsingar um hönnun námskeiða og kennsluáætlanir er að finna hjá Kennslumiðstöð - Setberg - Skipulag og hönnun námskeiðs.

Hægt er að lesa um námsmat og próf í greininni Námsmat og próf.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg