Greinar um þetta efni

Öryggi í HÍ

Á Öryggisvefnum geta starfsfólk og nemendur tilkynnt slys, óhöpp og slysagildrur (aðstæður sem geta valdið slysi). Einnig er hægt að senda almennar ábendingar á öryggisnefnd. Þú getur smellt á þann hnapp sem við á hér að neðan, skráð þig inn með notandanafni þínu og lykilorði og fyllt út formið. En ef þér finnst málið ekki þola neina bið þá eru starfandi umsjónarmenn í öllum byggingum háskólans sem hægt er að leita til ef þér finnst að eitthvað megi bæta í öryggismálum.

Tilkynna slys

Senda ábendingu til öryggisnefndar

Hvernig finn ég umsjónarmenn bygginga?

Upplýsingar um háskólabyggingar er að finna á ytri vef HÍ og þar finnur þú nafn og símanúmer umsjónarmanns með því að smella á viðeigandi byggingu. Lista yfir umsjónarmenn bygginga er einnig að finna á vef framkvæmda- og tæknisviðs.

Eru öryggisverðir í byggingum Háskólans?

Umsjónarmenn í byggingum eru jafnframt öryggisverðir. Upplýsingar um háskólabyggingar er að finna á ytri vef HÍ og þar geturðu fundið nafn og símanúmer umsjónarmanns með því að smella á viðegandi byggingu.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg