HPC-ofurtölvuumhverfi IREI innviðakjarnans samanstendur af nokkrum sérhæfðum reikniklösum, sem hver um sig er sérsniðinn að mismunandi þörfum reiknirannsókna og vísindalegrar tölvuvinnslu:
- Elja - hannað fyrir umfangsmiklar reiknirannsóknir og GPU-hraðaða vinnslu.
- Mímir - klasi sem samanstendur af færri hnútum/nóðum með meira vinnsluminni hver, ætlað fyrir minnisfreka vinnslu
- Dyngja - samanstendur af tveimur reiknihnútum og er fyrst og fremst hannaður til að styðja við þungar keyrslur í jarðmælingafræði.
- Stefnir - Sérhæft kerfi, hentar vel fyrir minni keyrslur, hraðari afgreiðslu og stuttan biðtíma
- Jötunn - minna og eldra kerfi sem er fyrst og fremstu notað til kennslu í notkun á HPC-kerfum
Meira um reikniklasa á heimasíðu IREI